Back to results

University of Iceland

Verkir eftir heilablóðfall. Fræðilegt yfirlit yfir áhrif langvinnra verkja eftir heilablóðfall og hagnýtar upplýsingar fyrir sjúklinga

Abstract

dc:description.abstract

Bakgrunnur: Allt að 53% einstaklinga sem hafa fengið heilablóðfall upplifa langvinna verki. Skortur er á upplýsingum á íslensku fyrir heilablóðfallssjúklinga með langvinna verki sem miða að því að auka þekkingu þeirra og getu til þess að velja úrræði. Tilgangur: Tvíþættur tilgangur að; (1) lýsa líkamlegum, andlegum og sálfélagslegum vandamálum hjá einstaklingum með langvinna verki meira en þremur mánuðum eftir heilablóðfall og (2) þróa fræðsluefni um langvinna verki. Markmið: (1) Að samþætta fræðilega þekkingu á langvinnum verkjum og áhrifum þeirra á líðan einstaklinga eftir heilablóðfall og (2) að bæta þekkingu um eðli langvinnra verkja hjá einstaklingum eftir heilablóðfall. Aðferð: (1) Framkvæmd var kerfisbundin leit í PubMed og CINAHL frá 2002-2015. Yfirlýsing frá PRISMA var höfð til hliðsjónar við greiningu heimilda. Niðurstöður voru flokkaðar út frá líkamlegum, andlegum og sálfélagslegum vandamálum. (2) Fræðsluefni á íslensku var þróað í fimm þrepum; (a) Leit innan núgildandi klínískra leiðbeininga. (b) Leit á viðurkenndum heimasíðum til að kanna útgefið efni fyrir sjúklinga. (c) Samþætting niðurstaðna í þrepi (a) og (b) með niðurstöðum fræðilega yfirlitsins til þess að bera kennsl á viðeigandi upplýsingar og forgangsröðun þeirra í bæklingnum. (d) Leita ráða hjá þverfaglegum hópi heilbrigðisstarfsfólks og (e) fá samþykki frá menntadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss til þess að nota fræðsluefnið. Niðurstöður: (1) Samtals 20 rannsóknir stóðust inntökuskilyrði og sýndu á margvíslegan hátt hvernig verkir hindra líkamlega virkni og hafa neikvæð áhrif á líðan og vitræna getu heilablóðfallssjúklinga. Einnig komu í ljós takmarkanir á lífsgæðum og aðferðum sem sjúklingar nota til að takast á við og lina verki. (2) Unnin voru drög að fræðsluefni um langvinna verki á íslensku. Umræður/ályktun: Mikilvægar upplýsingar fundust um verki eftir heilablóðfall sem er áríðandi fyrir hjúkrunarfræðinga að vera meðvitaðir um þegar þeir nálgast heilablóðfallssjúklinga með langvinna verki. Útbúið var fræðsluefni sem hjúkrunarfræðingar geta notað við fræðslu sjúklinga með langvinna verki. Mælt er með fýsileikarannsókn á notagildi fræðsluefnisins. Lykilorð: Taugaverkir (CPSP), höfuðverkur, hjúkrun, verkur, krónískur, axlarverkur, heilablóðfall, sjúklingafræðsla, endurhæfing, þjónusta utan heilbrigðisstofnana

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Soffía Scheving Thorsteinsson 1990-
  • Unnur Kjartansdóttir 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/21565
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/21565

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Soffía Scheving Thorsteinsson 1990-; Unnur Kjartansdóttir 1990-. Verkir eftir heilablóðfall. Fræðilegt yfirlit yfir áhrif langvinnra verkja eftir heilablóðfall og hagnýtar upplýsingar fyrir sjúklinga. 2015. http://hdl.handle.net/1946/21565