{"id":{"repo_id":"u-iceland","oai_identifier":"oai:skemman.is:1946/21408"},"canonical_url":"https://search.dev.ndltd.org/etd/u-iceland/oai:skemman.is:1946/21408","repository":{"repo_id":"u-iceland","name":"University of Iceland","base_url":"https://skemman.is/oai/request"},"display":{"title":"Staða þekkingarstjórnunar í fjármálafyrirtækjum á Íslandi: Að fortíð skal hyggja þegar framtíð skal byggja","abstract":"Í skipulagsheildum snýst þekkingarstjórnun um að stjórna þekkingarverðmætum en þau verðmæti eru mynduð af mannauði, skipulagi og tengslanetum. Til að stjórna þessum þáttum þarf stöðugt að huga að gæðum, viðbragshraða og aðlögunarhæfni skipulagsheildar. Þá skiptir máli að allar nauðsynlegar upplýsingar séu starfsfólki ávallt aðgengilegar og vel skipulagðar svo þær séu heildinni til hagsbóta. Markmið þessarar rannsóknar var að varpa ljósi á stöðu þekkingarstjórnunar í fjármálafyrirtækjum á Íslandi með því að skoða hvernig þekking er meðhöndluð, hvernig hún er skráð, vistuð, miðlað og nýtt og hvort að starfsmenn upplifi að einhverjar breytingar hafi átt sér stað í þessum efnum eftir hrunið sem hófst haustið 2008. Það ætti að gefa ágæta mynd á það hvað er mikilvægt og ábótavant út frá sjónarhorni starfsmanna skipulagsheildanna. Rannsóknin var framkvæmd meðal 10 starfsmanna þriggja banka og sparisjóða á Íslandi. Notast var við eigindlega aðferðafræði og voru viðmælendur valdir með hentugleikaúrtaki. Niðurstöður sýndu að bankar og sparisjóðir á Íslandi séu meðvitaðir um mikilvægi þekkingarstjórnunar. Að svo stöddu hefur hún þó ekki verið innleidd með formlegum hætti né ákveðin stefna í þekkingarstjórnun mótuð. Skýrari viðmið fyrirfinnast þó varðandi skráningu þekkingar í gagnagrunna og hafa flestir bankar mótað skýra stefnu varðandi slíka skráningu og notfæra sér ýmsar leiðir til þess að miðla ljósr i og leyndri þekkingu. Fyrirtækjamenningin einkennist af festu- og eftirlitsmenningu en jafnframt af menningu sem er þekkingarvingjarnleg og starfsfólk er álitið verðmætur hluti skipulagsheildarinnar. Starfsfólk bankanna og sparisjóðanna telur helstu kosti þekkingarstjórnunar vera að hún auki gæði þjónustu, bæti skipulag og ýti undir samkeppnisforskot heildarinnar. Einnig er þekking álitin ákveðið vald sem nauðsynlegt sé að skrá, vista og miðla til þess að hægt sé að endurnýta hana og þar af leiðandi auka gæði þjónustu, bæta þægindi í vinnunni og samræma vinnubrögð. Breytingar hafa átt sér stað á stöðu þekkingarstjórnunar í bönkum og sparisjóðum frá hruni 2008. Starfsfólk er betur nýtt, meira menntað og hefur víðtækari reynslu af fjármálafyrirtækjum. Aukin áhersla er lögð á skráningu, vistun, miðlun og hagnýtingu gagna. Lagt er upp með hvetjandi starfsumhverfi þar sem þættir þekkingarmiðlunar er sjálfsagðir í faglegu umhverfi.","abstract_html":"Í skipulagsheildum snýst þekkingarstjórnun um að stjórna þekkingarverðmætum en þau verðmæti eru mynduð af mannauði, skipulagi og tengslanetum. Til að stjórna þessum þáttum þarf stöðugt að huga að gæðum, viðbragshraða og aðlögunarhæfni skipulagsheildar. Þá skiptir máli að allar nauðsynlegar upplýsingar séu starfsfólki ávallt aðgengilegar og vel skipulagðar svo þær séu heildinni til hagsbóta. Markmið þessarar rannsóknar var að varpa ljósi á stöðu þekkingarstjórnunar í fjármálafyrirtækjum á Íslandi með því að skoða hvernig þekking er meðhöndluð, hvernig hún er skráð, vistuð, miðlað og nýtt og hvort að starfsmenn upplifi að einhverjar breytingar hafi átt sér stað í þessum efnum eftir hrunið sem hófst haustið 2008. Það ætti að gefa ágæta mynd á það hvað er mikilvægt og ábótavant út frá sjónarhorni starfsmanna skipulagsheildanna. Rannsóknin var framkvæmd meðal 10 starfsmanna þriggja banka og sparisjóða á Íslandi. Notast var við eigindlega aðferðafræði og voru viðmælendur valdir með hentugleikaúrtaki. Niðurstöður sýndu að bankar og sparisjóðir á Íslandi séu meðvitaðir um mikilvægi þekkingarstjórnunar. Að svo stöddu hefur hún þó ekki verið innleidd með formlegum hætti né ákveðin stefna í þekkingarstjórnun mótuð. Skýrari viðmið fyrirfinnast þó varðandi skráningu þekkingar í gagnagrunna og hafa flestir bankar mótað skýra stefnu varðandi slíka skráningu og notfæra sér ýmsar leiðir til þess að miðla ljósr i og leyndri þekkingu. Fyrirtækjamenningin einkennist af festu- og eftirlitsmenningu en jafnframt af menningu sem er þekkingarvingjarnleg og starfsfólk er álitið verðmætur hluti skipulagsheildarinnar. Starfsfólk bankanna og sparisjóðanna telur helstu kosti þekkingarstjórnunar vera að hún auki gæði þjónustu, bæti skipulag og ýti undir samkeppnisforskot heildarinnar. Einnig er þekking álitin ákveðið vald sem nauðsynlegt sé að skrá, vista og miðla til þess að hægt sé að endurnýta hana og þar af leiðandi auka gæði þjónustu, bæta þægindi í vinnunni og samræma vinnubrögð. Breytingar hafa átt sér stað á stöðu þekkingarstjórnunar í bönkum og sparisjóðum frá hruni 2008. Starfsfólk er betur nýtt, meira menntað og hefur víðtækari reynslu af fjármálafyrirtækjum. Aukin áhersla er lögð á skráningu, vistun, miðlun og hagnýtingu gagna. Lagt er upp með hvetjandi starfsumhverfi þar sem þættir þekkingarmiðlunar er sjálfsagðir í faglegu umhverfi.","abstract_has_math":false,"creators":["Ásta María Harðardóttir 1987-"],"institution":null,"degree_name":null,"degree_level":null,"degree_discipline":null,"degree_department":null,"school":null,"contributors":["Háskóli Íslands"],"advisors":[],"committee_chairs":[],"committee_members":[],"year":2015,"date_issued":"2015-05-11","date_published":"2015-05-11","updated_at":"2026-07-27T21:38:09Z","subjects":["Viðskiptafræði","Mannauðsstjórnun","Fjármálafyrirtæki","Þekkingarstjórnun"],"languages":["is"],"rights":[],"rights_urls":[],"identifier_entries":[]},"links":{"outbound_url":"http://hdl.handle.net/1946/21408","outbound_label":"Handle","outbound_source":"dc:identifier.uri"},"metadata_groups":[{"id":"people","label":"People","entries":[{"key":"dc:contributor","label":"Contributor","values":["Háskóli Íslands"]},{"key":"dc:creator","label":"Author","values":["Ásta María Harðardóttir 1987-"]}]},{"id":"academic_context","label":"Academic Context","entries":[{"key":"dc:date.accessioned","label":"Dc Date Accessioned","values":["2015-05-11T14:55:38Z"]},{"key":"dc:date.available","label":"Dc Date Available","values":["2015-05-11T14:55:38Z"]},{"key":"dc:date.issued","label":"Date","values":["2015-05-11"]},{"key":"dc:type","label":"Dc Type","values":["Thesis"]}]},{"id":"subjects_keywords","label":"Subjects and Keywords","entries":[{"key":"dc:subject","label":"Dc Subject","values":["Viðskiptafræði","Mannauðsstjórnun","Fjármálafyrirtæki","Þekkingarstjórnun"]}]},{"id":"language_rights","label":"Language and Rights","entries":[{"key":"dc:language.iso","label":"Language (ISO)","values":["is"]}]},{"id":"identifiers","label":"Identifiers","entries":[{"key":"dc:identifier.uri","label":"Identifier URI","values":["http://hdl.handle.net/1946/21408"]}]},{"id":"additional","label":"Additional Metadata","entries":[{"key":"dc:description.abstract","label":"Abstract","values":["Í skipulagsheildum snýst þekkingarstjórnun um að stjórna þekkingarverðmætum en þau verðmæti eru mynduð af mannauði, skipulagi og tengslanetum. Til að stjórna þessum þáttum þarf stöðugt að huga að gæðum, viðbragshraða og aðlögunarhæfni skipulagsheildar. Þá skiptir máli að allar nauðsynlegar upplýsingar séu starfsfólki ávallt aðgengilegar og vel skipulagðar svo þær séu heildinni til hagsbóta. Markmið þessarar rannsóknar var að varpa ljósi á stöðu þekkingarstjórnunar í fjármálafyrirtækjum á Íslandi með því að skoða hvernig þekking er meðhöndluð, hvernig hún er skráð, vistuð, miðlað og nýtt og hvort að starfsmenn upplifi að einhverjar breytingar hafi átt sér stað í þessum efnum eftir hrunið sem hófst haustið 2008. Það ætti að gefa ágæta mynd á það hvað er mikilvægt og ábótavant út frá sjónarhorni starfsmanna skipulagsheildanna. Rannsóknin var framkvæmd meðal 10 starfsmanna þriggja banka og sparisjóða á Íslandi. Notast var við eigindlega aðferðafræði og voru viðmælendur valdir með hentugleikaúrtaki. Niðurstöður sýndu að bankar og sparisjóðir á Íslandi séu meðvitaðir um mikilvægi þekkingarstjórnunar. Að svo stöddu hefur hún þó ekki verið innleidd með formlegum hætti né ákveðin stefna í þekkingarstjórnun mótuð. Skýrari viðmið fyrirfinnast þó varðandi skráningu þekkingar í gagnagrunna og hafa flestir bankar mótað skýra stefnu varðandi slíka skráningu og notfæra sér ýmsar leiðir til þess að miðla ljósr i og leyndri þekkingu. Fyrirtækjamenningin einkennist af festu- og eftirlitsmenningu en jafnframt af menningu sem er þekkingarvingjarnleg og starfsfólk er álitið verðmætur hluti skipulagsheildarinnar. Starfsfólk bankanna og sparisjóðanna telur helstu kosti þekkingarstjórnunar vera að hún auki gæði þjónustu, bæti skipulag og ýti undir samkeppnisforskot heildarinnar. Einnig er þekking álitin ákveðið vald sem nauðsynlegt sé að skrá, vista og miðla til þess að hægt sé að endurnýta hana og þar af leiðandi auka gæði þjónustu, bæta þægindi í vinnunni og samræma vinnubrögð. Breytingar hafa átt sér stað á stöðu þekkingarstjórnunar í bönkum og sparisjóðum frá hruni 2008. Starfsfólk er betur nýtt, meira menntað og hefur víðtækari reynslu af fjármálafyrirtækjum. Aukin áhersla er lögð á skráningu, vistun, miðlun og hagnýtingu gagna. Lagt er upp með hvetjandi starfsumhverfi þar sem þættir þekkingarmiðlunar er sjálfsagðir í faglegu umhverfi."]},{"key":"dc:title","label":"Title","values":["Staða þekkingarstjórnunar í fjármálafyrirtækjum á Íslandi: Að fortíð skal hyggja þegar framtíð skal byggja"]}]}],"canonical_facts":{"dc:contributor":["Háskóli Íslands"],"dc:creator":["Ásta María Harðardóttir 1987-"],"dc:date.accessioned":["2015-05-11T14:55:38Z"],"dc:date.available":["2015-05-11T14:55:38Z"],"dc:date.issued":["2015-05-11"],"dc:description.abstract":["Í skipulagsheildum snýst þekkingarstjórnun um að stjórna þekkingarverðmætum en þau verðmæti eru mynduð af mannauði, skipulagi og tengslanetum. Til að stjórna þessum þáttum þarf stöðugt að huga að gæðum, viðbragshraða og aðlögunarhæfni skipulagsheildar. Þá skiptir máli að allar nauðsynlegar upplýsingar séu starfsfólki ávallt aðgengilegar og vel skipulagðar svo þær séu heildinni til hagsbóta. Markmið þessarar rannsóknar var að varpa ljósi á stöðu þekkingarstjórnunar í fjármálafyrirtækjum á Íslandi með því að skoða hvernig þekking er meðhöndluð, hvernig hún er skráð, vistuð, miðlað og nýtt og hvort að starfsmenn upplifi að einhverjar breytingar hafi átt sér stað í þessum efnum eftir hrunið sem hófst haustið 2008. Það ætti að gefa ágæta mynd á það hvað er mikilvægt og ábótavant út frá sjónarhorni starfsmanna skipulagsheildanna. Rannsóknin var framkvæmd meðal 10 starfsmanna þriggja banka og sparisjóða á Íslandi. Notast var við eigindlega aðferðafræði og voru viðmælendur valdir með hentugleikaúrtaki. Niðurstöður sýndu að bankar og sparisjóðir á Íslandi séu meðvitaðir um mikilvægi þekkingarstjórnunar. Að svo stöddu hefur hún þó ekki verið innleidd með formlegum hætti né ákveðin stefna í þekkingarstjórnun mótuð. Skýrari viðmið fyrirfinnast þó varðandi skráningu þekkingar í gagnagrunna og hafa flestir bankar mótað skýra stefnu varðandi slíka skráningu og notfæra sér ýmsar leiðir til þess að miðla ljósr i og leyndri þekkingu. Fyrirtækjamenningin einkennist af festu- og eftirlitsmenningu en jafnframt af menningu sem er þekkingarvingjarnleg og starfsfólk er álitið verðmætur hluti skipulagsheildarinnar. Starfsfólk bankanna og sparisjóðanna telur helstu kosti þekkingarstjórnunar vera að hún auki gæði þjónustu, bæti skipulag og ýti undir samkeppnisforskot heildarinnar. Einnig er þekking álitin ákveðið vald sem nauðsynlegt sé að skrá, vista og miðla til þess að hægt sé að endurnýta hana og þar af leiðandi auka gæði þjónustu, bæta þægindi í vinnunni og samræma vinnubrögð. Breytingar hafa átt sér stað á stöðu þekkingarstjórnunar í bönkum og sparisjóðum frá hruni 2008. Starfsfólk er betur nýtt, meira menntað og hefur víðtækari reynslu af fjármálafyrirtækjum. Aukin áhersla er lögð á skráningu, vistun, miðlun og hagnýtingu gagna. Lagt er upp með hvetjandi starfsumhverfi þar sem þættir þekkingarmiðlunar er sjálfsagðir í faglegu umhverfi."],"dc:identifier.uri":["http://hdl.handle.net/1946/21408"],"dc:language.iso":["is"],"dc:subject":["Viðskiptafræði","Mannauðsstjórnun","Fjármálafyrirtæki","Þekkingarstjórnun"],"dc:title":["Staða þekkingarstjórnunar í fjármálafyrirtækjum á Íslandi: Að fortíð skal hyggja þegar framtíð skal byggja"],"dc:type":["Thesis"]},"updated_at":"2026-07-27T21:38:09Z"}