Back to results

University of Iceland

Hvað áttu við með sexting? Orsakir og afleiðingar af stafrænum kynferðislegum samskiptum unglinga

Abstract

dc:description.abstract

Hugtakið sexting er notað um það þegar stafræn skilaboð eru send á milli einstaklinga sem eru kynferðislegs eðlis og oft á tímum myndefni sem sýnir nekt eða kynferðislega hegðun. Tilgangur þessa verkefnis er að varpa ljósi á hugtakið sexting og draga fram hvaða þættir það eru sem hafa áhrif á hegðunina og hverjar afleiðingarnar geta verið. Áhrifaþættir á sexting geta verið klám og -kynlífsvæðing, sjálfsmynd einstaklinga og viðmið og gildi umhverfisins, þar sem helst má nefna áhrif jafnaldra. Afleiðingar af sexting geta verið óæskileg kynferðisleg hegðun, ýmsir sálrænir kvillar og hefndarklám sem er alvarlegasta birtingarmyndin af sexting. Hefndarklám getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir einstaklinga og eru dæmi um það að einstaklingar hafa framið sjálfsmorð vegna hefndarkláms sem rekja má til sexting. Hugtakið sexting er nýtt hér á landi og var verkefnið bæði hugsað sem vitundarvakning um þau vandamál sem geta komið í kjölfarið af sexting og að hvetja til frekari rannsóknar um efnið hér á landi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sævar Jökull Björnsson 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/21233
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/21233

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sævar Jökull Björnsson 1986-. Hvað áttu við með sexting? Orsakir og afleiðingar af stafrænum kynferðislegum samskiptum unglinga. 2015. http://hdl.handle.net/1946/21233