Back to results

University of Iceland

Die gegenwärtige Lage der Juden in Deutschland

Abstract

dc:description.abstract

Þessi ritgerð er lokaverkefni í BA-námi við Deild erlendra tungumála við Háskóla Íslands. Í ritgerð þessari skrifar höfundur um núverandi stöðu gyðinga í Þýskalandi í dag. Gyðingar eiga átakanlega sögu, sérstaklega í Þýskalandi og spyr höfundur sig stundum afhverju gyðingar vilja búa í landi þar sem þeir voru píndir og myrtir. Ritgerðin svarar þeirri spurningu og sýnir heildarmynd af lífi þeirra í Þýskalandi. Gerð var eigindleg rannsókn til að hjálpa við að svara rannsóknarspurningunni sem hljómar svona : Hvernig er núverandi staða gyðinga í Þýskalandi í dag? Farið verður í gegnum hugtök og skilgreiningar sem viðkoma trú gyðinga, þar á meðal um klæðaburð, hátíðardaga og ýmsa siði einnig hvernig gyðingar skiptast niður eftir því hvaðan þeir koma og hvernig nýjar hreyfingar innan trúnnar þróuðust gegnum tíðina. Farið verður í sögu gyðinga og þriðja ríkisins. Ekki má gleyma að tala um gyðingahatur sem á sér stað ennþá til dagsins í dag. Því næst er farið í nútímann þar sem rætt er um skóla, leikskóla og möguleika sem þau hafa í Þýskalandi þar á meðal um félög gyðinga. Í lokin er talað um rannsóknina sem gerð var. Eigindleg rannsókn var gerð í formi viðtala. Rætt var við tvo einstaklinga sem eru gyðingatrúar og búa í Þýskalandi. Farið var til Berlinar til að taka viðtölin en einnig til að afla frekari gagna um lífið sem gyðingur í Þýskalandi. Þátttakendur rannsóknarinnar voru spurðir ýmissa spurninga, eins og afhverju þeir byggju í Þýskalandi, hvort þeir fyndu fyrir gyðingahatri og hvernig samfélagið væri í Þýskalandi. Áhugaverðar upplýsingar fengust úr viðtölunum og ferðinni til Berlinar. Höfundur hafði mikinn áhuga á ritgerðarefninu og fannst vera meiri þörf á umræðu og kennslu um trú gyðinga. Ekki fannst mikið af umfjöllunum um stöðu gyðinga í Þýskalandi í dag, heldur var flest frá fortíðinni. Þar af leiðandi fannst höfundi núverandi staða gyðinga í Þýskalandi tilvalið umfjöllunarefni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hulda Rós Blöndal Snorradóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
de

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/21204
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/21204

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hulda Rós Blöndal Snorradóttir 1991-. Die gegenwärtige Lage der Juden in Deutschland. 2015. http://hdl.handle.net/1946/21204