Back to results

University of Iceland

CE merkingar. CE merkið og leikföng

Abstract

dc:description.abstract

Vöruframleiðsla og innleiðing á Evrópumörkuðum hefur verið erfið undanfarin ár þar sem tengingu hefur vantað á milli markaðssetningar og lagalegra þátta þegar kemur að því að framleiða, markaðssetja og dreifa vörum á Evrópusvæðinu. Helstu vandkvæði hafa verið tæknilegar hindranir. Þessi hindranir stafa af misræmi á milli aðildarríkja hvað varðar reglugerðir, misræmi á innlendum stöðlum og prófunum ásamt vottunaraðferðum. Vörur með CE merkingu má markaðssetja og selja í þeim löndum sem tilheyra EES, þ.e. ESB aðildarríkjum og EFTA löndunum þremur, Íslandi, Noregi og Liechtenstein. Sala þeirra er óháð því hvort varan sé framleidd í heimalandi sínu eða ekki og gilda kröfurnar líka um vörur sem koma frá ríkjum utan EES. Markmið með þessari ritgerð er að fjalla almennt um CE merkingar og fara yfir helstu atriði sem skipta máli í því samhengi. Sérstaklega verður tekinn fyrir einn vöruflokkur sem heyrir undir nýaðferðartilskipanir, þ.e. leikföng. Megindleg rannsókn var gerð og þótti höfundi mikilvægt að fá svör við því hve upplýstir neytendur væru um CE merkingu. Einnig vildi höfundur komast að því hvort neytendur gerðu greinamun á CE merkingu og China export merkingu (CE), sem eru keimlíkar að sjá en hafa gjörólíka þýðingu. Niðurstöður leiddu meðal annars í ljós að þátttakendur í rannsókninni höfðu ekki nægilega vitneskju um CE merkingar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sólveig María Erlendsdóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/21012
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/21012

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sólveig María Erlendsdóttir 1987-. CE merkingar. CE merkið og leikföng. 2015. http://hdl.handle.net/1946/21012