Back to results

University of Iceland

Árangursrík vernd vegna kynbundinna ofsókna. Skýring á flóttamannahugtaki Flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna í samræmi við stöðu kvenna á flótta

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerðin fjallar um flóttamannahugtak Flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna og hvernig það fellur að félagslegum raunveruleika kvenna á flótta. Rannsakað er hvort kyn skiptir máli við málsmeðferð og niðurstöðu hælisveitinga og þau áhrif sem kyn, bæði líffræðilegt og félagslegt, getur haft á réttarstöðu kvennanna. Kvennaréttarlegu og feminísku sjónarhorni er beitt á viðfangsefnið og farið er í hvernig kynbundin áhætta, mismunun og ofbeldi geta náð marki ofsókna, sem taka oft á tíðum á sig aðra birtingarmynd en ofsóknir karla. Mikilvæg atriði á borð við ofsóknir, ástæðuríkan ótta og ákvörðunarástæður þær sem hugtakið gerir kröfu um að ofsóknir séu byggðar á verða skoðuð í ljósi kynferðis, þ.e. hvort að hugtakið sé í framkvæmd í samræmi við raunveruleika kvenna og sé túlkað og skýrt með tilliti til þeirra ólíku aðstæðna og upplifana sem kynin standa frammi fyrir, auk þess sem nokkrar tegundir kynbundinna ofsókna eru skýrðar nánar. Íslensk löggjöf um málefni hælisleitenda eru skoðuð og þá aðallega lög um útlendinga nr. 96/2002 með síðari breytingum, auk þess sem framkvæmd laganna er skoðuð með því að fara yfir nokkur mál útlendingayfirvalda þar sem ákvarðanir voru teknar í málefnum flóttakvenna á stjórnsýslustigi. Athugun er gerð á því hvaða sjónarmið ráða þar för og hvernig rökstuðningi yfirvalda er háttað. Þá eru alþjóðlegir samningar á sviði flóttamannaréttar og kynjajafnréttis skoðaðir, tilskipanir Evrópusambandsins auk norskrar löggjafar og framkvæmdar vegna líkinda íslenskra og norskra laga. Í framhaldinu er farið í hvernig sé hægt að veita konum sem hingað til lands koma árangursríka vernd hér á landi í þeim tilvikum þar sem þær falla ekki jafn greiðlega að flóttamannahugtakinu í alþjóðlegri löggjöf sem og innlendri með því að kafa nánar í einstaka málsmeðferðar- og leiðbeiningarreglur. Raktar eru þær breytingar sem gerðar hafa verið á útlendingalöggjöf í jafnréttisátt á undanförnum árum og tillögur eru settar fram um hvernig vernd flóttakvenna gæti verið háttað í framhaldinu, í samræmi við nágrannaríki okkar og alþjóðlega stefnumótun og framkvæmd á sviðinu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristjana Fenger 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/20900
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/20900

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristjana Fenger 1989-. Árangursrík vernd vegna kynbundinna ofsókna. Skýring á flóttamannahugtaki Flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna í samræmi við stöðu kvenna á flótta. 2015. http://hdl.handle.net/1946/20900