Back to results

University of Iceland

Job í kvikmyndum og bókmenntum. „Drottinn gaf og Drottinn tók“

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi fjallar um áhrifasögu Jobsbók út frá kvikmyndum og bókmenntum. Söguþráður kvikmyndanna er kynntur og eru hliðstæður við Jobsbók tilgreindar.Myndirnar sem eru sérstaklega skoðaðar eru A Serious Man (2009), Commandments(1997) og Adams æbler (2005). Þessar kvikmyndir eiga það sameiginlegt að sýna margar hliðstæður við Jobsbók, ekki er þó um margar beinar tilvitnanir að ræða í þeim en óbeinu tilvitnanirnar eru þeim mun fleiri. Einnig er bókin Vetrarferðin (1998) eftir Ólaf Gunnarsson skoðuð sérstaklega. Margt í bókinni minnir á Jobsbók og eru á nokkrum stöðum í henni beinar tilvitnanir í bókina. Aðalsögupersónur, bæði kvikmyndanna og Vetrarferðarinnar, eiga allar það sameiginlegt að lifa við hliðstæða þjáningu og Job gerði. Þessi verk eru sett fram af léttleika og húmor, þrátt fyrir að viss alvarleiki liggi yfir þjáningu persónanna. Sögupersónurnar eiga það einnig sameiginlegt að þær leita allar að svörum við spurningum líkt og Job gerði. „Af hverju ég?“ Í upphafi allra verkanna má rýna í áherslur þess að sögupersónurnar séu settar fram sem hin réttláta manneskja, hvers vegna á hinn réttláti að þjást. Hver og ein sögupersónanna bregst þó við þjáningunum á sinn hátt og er fjölbreytileikinn mikill. Allar standa þær þó uppi í lok verkanna með einhvers konar pálma í höndunum. Annað hvort fengu þau svipað til baka og þau höfðu glatað eða þar hefur jafnvel margfaldast. Merkilegt er hvernig höfundum verkanna tekst að nútímavæða Jobsbók á jafn skemmtilegan og léttan hátt og raun ber vitni, þrátt fyrir mikla þjáningu oft og tíðum

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Stefanía Steinsdóttir 1980-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/19702
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/19702

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Stefanía Steinsdóttir 1980-. Job í kvikmyndum og bókmenntum. „Drottinn gaf og Drottinn tók“. 2014. http://hdl.handle.net/1946/19702