Back to results

University of Iceland

Eru ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins bindandi?

Abstract

dc:description.abstract

Samkvæmt 34. gr. samnings EFTA-ríkjanna um stofnun eftirlitsstofnunar og dómstóls hefur EFTA-dómstóllinn lögsögu til þess að veita dómstólum EFTA-ríkjanna ráðgefandi álit varðandi túlkun á samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Samkvæmt greininni getur dómstóll í EFTA-ríki óskað eftir slíku áliti telji hann það nauðsynlegt til þess að geta kveðið upp dóm. Tilgangur álitanna er að samræma túlkun og beitingu reglna Evrópska efnahagssvæðisins svo úr verði einsleitt efnahagssvæði. Ekki eru öll atriði varðandi ráðgefandi álit skýr, skiptar skoðanir eru um hvort heimild dómstóla til að óska eftir ráðgefandi áliti sé einungis heimild en aldrei skylda og hvort álitin séu einungis ráðgefandi eins og nafnið gefur til kynna eða hvort meiri skuldbinding felist í slíkum álitum en svo að þau séu einungis ráðgefandi. Ákvæðið um ráðgefandi álit sækir fyrirmynd sína í ákvæði stofnsáttmála ESB um forúrskurði og ekki er alltaf ljóst hversu mikill munur er á þessum tveimur fyrirbærum. Í þessari ritgerð verður aðallega tekið fyrir álitaefnið um skuldbindingargildi ráðgefandi álitanna en önnur álitaefni verða þó einnig skoðuð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Erla Sóley Frostadóttir 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/19320
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/19320

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Erla Sóley Frostadóttir 1990-. Eru ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins bindandi?. 2014. http://hdl.handle.net/1946/19320