Back to results

University of Iceland

„En við erum bara venjulegt fólk.“ Viðhorf og þekking innflytjenda á varðveislu einkaskjalasafna

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar var kanna viðhorf og þekkingu innflytjenda til varðveislu einkaskjala í skjalasafni, hver staðan væri á Íslandi og hvað væri hægt að gera. Varðveislu einkaskjala innflytjenda hefur verið ábótavant í skjalasöfnum Íslands. Rannsóknin byggðist á eigindlegri rannsóknaraðferðafræði þar sem voru tekin átta hálfopin viðtöl við átta innflytjendur, einn sem hefur afhent einkaskjölin sín til skjalasafns og sjö sem hafa ekki gert það enn. Að auki voru gerðar kannanir á ýmsum skjalasöfnum og athugað með viðhorf stjórnvalda. Ekki hafa verið gerðar sambærilegar rannsóknir á Íslandi en þó eru nokkur dæmi um rannsóknir og verkefni sem tengjast varðveislu einkaskjala frá minnihlutahópum í öðrum löndum, eins og í Bandaríkjunum og á Spáni. Rannsóknin leiddi í ljós að ekki var verið að gera mikið til að fá inn skjöl innflytjenda og ekki var mikið til af þeim til í skjalasöfnum landsins. Athugun á því hvort stjórnvöld væru með slíkar áætlanir eða gerðu sér grein fyrir vandamálinu sýndi að svo var ekki. Rannsóknin leiddi jafnframt í ljós að skortur á þekkingu hjá innflytjendum veldur því að þeir fara ekki með einkaskjölin sín í skjalasafn. Innflytjendur gera sér ekki grein fyrir því til hvers varðveislan er, hvert hlutverk skjalasafns er eða að hægt sé að varðveita einkaskjöl með þessum hætti. Niðurstöður sýndu að fleiri rannsókna er þörf, svo sem að greina hvað aðrar stofnanir sem vinna að söfnun skjala frá minnihlutahópum eru að gera til að ná til minnihlutahópa. Einnig mætti greina nákvæmlega hvaða skjöl innflytjendur eiga og hvað af þeim væri fýsilegt að geyma í skjalasafni. Jafnframt vantar fræðslu varðandi varðveislu einkaskjala í skjalasöfnum fyrir innflytjendur.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Larota Catunta, Fany, 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/18183
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/18183

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Larota Catunta, Fany, 1981-. „En við erum bara venjulegt fólk.“ Viðhorf og þekking innflytjenda á varðveislu einkaskjalasafna. 2014. http://hdl.handle.net/1946/18183