Abstract
dc:description.abstractSkoðanir eru skiptar um ágæti þróunaraðstoðar þar sem fyrir liggur að oft fara miklir fjármunir forgörðum vegna mikillar spillingar og annarra vandamála í viðtökuríkjunum. Flest lönd eru þó hlynnt veitingu þróunaraðstoðar og hefur magn opinberrar aðstoðar aukist mikið síðustu ár, sérstaklega eftir tilkomu þúsaldarmarkmiða Sameinuðu þjóðanna sem kynnt voru til sögunnar árið 2000. Í þessari ritgerð er gerð grein fyrir því í hverju þróunaraðstoð felst, hvaða ábata hún skilar og hvort aðstæður í viðtökuríkinu hafi áhrif á ábata þróunaraðstoðar. Í þessu sambandi er borin saman saga þróunaraðstoðar í Suður-Kóreu og Nepal. Farið er yfir helstu tímabil þar sem þróunaraðstoð spilaði stóran þátt í efnahags- og atvinnulífi þjóðanna og rakið er hvaðan og í hvaða mynd aðstoðin barst. Þá er gerð grein fyrir mati fræðimanna á virkni þróunaraðstoðar í löndunum tveimur auk þess sem rakin er staða efnahags- og atvinnulífs þeirra í dag.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Helga Soffía Guðjónsdóttir 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/18141
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/18141