Back to results

University of Iceland

Fóstureyðingar og félagsráðgjöf. Ákvörðunartökuferli og líðan kvenna

Abstract

dc:description.abstract

Þessi heimildaritgerð er lokaverkefni til B.A.-prófs í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Meginviðfangsefni þessarar ritgerðar er fóstureyðingar og félagsráðgjöf. Í upphafi er fræðileg umfjöllun um fóstureyðingar, því næst er fjallað um þá meðferðarmöguleika sem eru í boði hérlendis og þá löggjöf sem snýr að fóstureyðingum. Enn fremur eru þeir þættir sem móta ákvarðanir kvenna og stöðu þeirra og líðan eftir fóstureyðingu skoðaðir. Ásamt því er fjallað um hlutverk félagsráðgjafa í tengslum við fóstureyðingar. Mikilvægt er að opna jákvæða umræðu um fóstureyðingar þar sem mikið er um fordóma og vanþekkingu á málefninu. Mæta þarf þörf fyrir fræðslu og ráðgjöf þegar kemur að konum sem íhuga fóstureyðingu og á sama tíma ber að hafa í huga viðkvæma stöðu þeirra sem eru í sporum sem þessum. Ritgerðinni er ætlað að varpa ljósi á áhrifaþætti kvenna sem standa frammi fyrir ákvörðun um fóstureyðingu og jafnframt þau úrræði sem eru í boði fyrir þennan hóp kvenna. Hér er fræðileg umfjöllun á sviði félagsráðgjafar og skyldum greinum skoðuð og setti höfundur fram eftirfarandi rannsóknarspurningar: Hvaða þættir móta ákvörðun kvenna þegar þær eru að íhuga að fara í fóstureyðingu? Hver er líðan kvenna eftir fóstureyðingu? Hvert er hlutverk félagsráðgjafa í tengslum við fóstureyðingar? Niðurstöður gefa til kynna að margþættar ástæður geta legið að baki ákvörðun þeirra kvenna sem óska eftir fóstureyðingu en þær eru ýmist af félagslegum, tilfinningalegum eða læknisfræðilegum toga. Hér á landi er þó algengast að konur kjósi að fara í fóstureyðingu vegna félagslegra ástæðna. Enn fremur er líðan kvenna eftir fóstureyðingu mjög einstaklingsbundin, en algengt er að konur upplifi blendnar tilfinningar. Hlutverk félagsáðgjafa í tengslum við fóstureyðingar er fyrst og fremst að veita konum í aðstæðum sem þessum viðeigandi ráðgjöf og stuðning, tryggja rétt þeir og aðstoða þær við ákvörðunartöku, út frá þeirra eigin forsendum. Lykilorð: Fóstureyðingar, áhrifaþættir, líðan, félagsráðgjöf.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Alexandra Ólöf Gunnarsdóttir 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/18111
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/18111

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Alexandra Ólöf Gunnarsdóttir 1990-. Fóstureyðingar og félagsráðgjöf. Ákvörðunartökuferli og líðan kvenna. 2014. http://hdl.handle.net/1946/18111