Back to results

University of Iceland

Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Árangur í Vestur Afríku, Senegal

Abstract

dc:description.abstract

Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna voru samþykkt árið 2001 af 189 aðildarríkjum. Meginmarkmið þúsaldaryfirlýsingarinnar eru 8 talsins og innan þeirra eru 18 takmörk. Það náðist sátt um þessi markmið á grundvelli undangenginna alþjóðasamþykkta og funda á tíunda áratuginum meðal aðildarríkjanna. Þúsaldarkmiðin fjalla um að minnka fátækt í heiminum, bæta heilsu fólks, stuðla að friði, mannréttindum, kynjajafnrétti og sjálfbærni í umhverfisþróun. Markmiðin tengjast innbyrðis þar sem þau styðja við hvort annað. Sameinuðu Þjóðirnar gáfu sér tímaramma fram til enda ársins 2015 til þess að ná þessum tilsettu markmiðum í heiminum. Misvel hefur gengið að ná því takmarki og skapast hafa vandamál við framvindu verkefnisins innan einstakra landa og sum svæði í heiminum eiga enn langt í land með að uppfylla þúsaldarmarkmiðin öll. Svæðið sunnan Sahara hefur verið erfitt viðureignar vegna mikillar fátæktar og ójöfnuðs. Senegal er land sem liggur við vesturströnd Afríku sem hefur náð töluverðum árangri við að ná settum markmiðum þó vissulega mætti margt betrumbæta. Í þessari ritgerð verður fjallað um sex fyrstu þúsaldarmarkmið Sameinuðu Þjóðanna og framvindu þeirra í Senegal. Þessi sex markmið fjalla öll um hið mannlega og grundvallarþarfir manntegundarinnar. Farið verður í hvort Senegal hefur náð þessum þúsaldarmarkmiðum sínum hingað til og hvort raunhæft sé að ná þessum markmiðum fyrir enda ársins 2015. Fjallað verður um þá hugmyndafræði sem unnið er eftir til þess að ná markmiðunum, hvað hefur farið úrskeiðis og hvað má betur fara.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Fatou N'dure Baboudóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/17908
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/17908

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Fatou N'dure Baboudóttir 1987-. Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Árangur í Vestur Afríku, Senegal. 2014. http://hdl.handle.net/1946/17908