Back to results

University of Iceland

Skjól í skugga áfalla: Samanburður á skjóli í efnahagshruninu í Eistlandi og á Íslandi með tilliti til Evrópustefnu stjórnvalda

Abstract

dc:description.abstract

Í kjölfar alþjóðlegu efnahagskreppunnar sem reið yfir haustið 2008 stóðu stjórnvöld í fjölmörgum ríkjum frammi fyrir alvarlegum efnahagsvanda. Í þessari rannsókn var sjónum beint að Íslandi og Eistlandi en ríkin eiga það sameiginlegt að flokkast bæði til smáríkja og bæði urðu illa úti í efnahagshruninu. Stjórnvöld í ríkjunum hafa þó rekið ólíkar Evrópustefnur en Eistland er sem kunnugt er aðili að Evrópusambandinu á meðan Ísland stendur utan sambandsins. Hér var sérstaklega skoðað hvernig þessar ólíku Evrópustefnur höfðu áhrif á það skjól sem ríkin nutu varðandi efnahagshrunið. Meginrannsóknin skiptist þannig í þrennt. Skoðað var hvort Evrópustefnur stjórnvalda höfðu áhrif á skjól til að koma í veg fyrir efnahagshrunið, hvort þær höfðu áhrif á skjól þegar takast þurfti á við efnahagshrunið sjálf og hvort þær höfðu áhrif á það skjól sem ríkin nutu í uppbyggingarferlinu. Til að skoða hvort og hvar ríkin nutu skjóls í efnahagshruninu voru gögn frá alþjóðastofnunum skoðuð en einnig gögn frá innlendum aðilum í ríkjunum sjálfum. Helstu niðurstöður benda til þess að Evrópustefnur stjórnvalda í hvorugu ríkinu hafi getað veitt skjól í aðdraganda hrunsins. Þannig hafi aðgangur Íslands og Eistlands að innri mörkuðum Evrópu frekar ýtt undir þenslu en að vernda hagkerfi ríkjanna hættunni á efnahagshruni. Hins vegar varð Evrópustefna stjórnvalda í Eistlandi til þess að ríkið naut skjóls bæði í efnahagshruninu sjálfu og við uppbygginguna eftir það. Stjórnvöld á Íslandi nutu ekki slíks skjóls enda hafa þau kosið að standa utan við Evrópusambandið sjálft.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Margrét Birna Björnsdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/17664
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/17664

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Margrét Birna Björnsdóttir 1986-. Skjól í skugga áfalla: Samanburður á skjóli í efnahagshruninu í Eistlandi og á Íslandi með tilliti til Evrópustefnu stjórnvalda. 2014. http://hdl.handle.net/1946/17664