Back to results

University of Iceland

1. mgr. 206. gr. almennra hegningarlaga. Fullframningarstig, tilraun og afturhvarf

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni þessarar ritgerðar er 1. mgr. 206. gr. almennra hegningarlaga. Málsgrein þessari var bætt við ákvæðið árið 2009 , en fyrir þann tíma var í lögum bann við því að stunda vændi sér til framfærslu. Eftir lagabreytinguna er það greiðslan sjálf sem er bönnuð lögum samkvæmt og þeim sem selja vændi er ekki gerð refsing fyrir þá háttsemi. Með þessari breytingu er fetað í fótspor Svía með sænsku leiðinni svokölluðu sem nánar verður fjallað um, en með henni voru kaup á vændi gerð refsiverð. Efni málsgreinar þessarar verður skoðað ítarlega í ritgerð þessari og leitast verður við að varpa ljósi á það hvernig beiting þessarar málsgreinar ákvæðisins hefur verið hér á landi eftir lagabreytinguna frá 2009. Fjallað verður um hvenær brot gegn ákvæðinu telst fullframið og hvenær brot er á tilraunarstigi. Þá mun einnig koma til skoðunar afturhvarf frá tilraun, hvenær það er lögmætt og hvenær ekki. Ekki hefur reynt mikið á ákvæði þetta í sakamálum frá breytingu ákvæðisins en nokkrir dómar hafa fallið eftir þessa breytingu og var sakfellt í mörgum þeirra þar sem játning lá oftast fyrir og eru viðurlögin sekt. Áhugavert að skoða er hvort sakfellt hafi verið fyrir tilraun til vændiskaupa hér á landi sem og erlendis, þar sem sambærileg lagaákvæði eru í gildi. Hvaða háttsemi fellur undir og leiðir til sakfellingar fyrir tilraunarbrot? Er nóg að kaupandinn greiði fyrir vændi eða þurfa vændiskaupin hafa gengið lengra? Er mikill munur á fullfrömdu broti og tilraunarbroti? Hvernig er 1. mgr. 206. gr. hgl. túlkuð og beitt í framkvæmd? Getum við túlkað málsgreinina eftir orðanna hljóðan?

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Eydís Arna Líndal 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/17549
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/17549

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Eydís Arna Líndal 1990-. 1. mgr. 206. gr. almennra hegningarlaga. Fullframningarstig, tilraun og afturhvarf. 2014. http://hdl.handle.net/1946/17549