University of Iceland
Þunglyndi og kvíði á meðgöngu og eftir barnsburð. Félagslegur stuðningur og úrræði
Abstract
dc:description.abstractMeginviðfangsefni heimildaritgerðar þessarar var að gera grein fyrir þunglyndi og kvíða hjá konum á meðgöngu og eftir barnsburð út frá félagslegum sjónarmiðum. Greint var frá því hvaða stuðningsúrræði eru í boði í samfélaginu fyrir barnshafandi konur. Að auki voru sértækari stuðningsúrræði fyrir konur sem greinast með þunglyndi og/eða kvíða á meðgöngu og/eða eftir barnsburð skoðuð. Hér á landi fæddust árið 2012 alls 4533 lifandi börn. Síðastliðin ár hefur verið algengara að börn fæðist utan hjónabands en innan þess. Að eignast barn er stór viðburður í lífi flestra en upplifunin getur þó verið mismunandi milli einstaklinga, flestir upplifa barneignir sem gleðiviðburð en til eru þeir sem gera það ekki. Markmið höfunda ritgerðarinnar var að gera grein fyrir algengi þunglyndis og kvíða á meðgöngu og eftir barnsburð. Auk þess var skoðað hvaða áhættuþættir geta valdið því að konur þjáist af þunglyndi og kvíða á meðgöngu og/eða eftir barnsburð og jafnframt sýnt fram á það hversu mikilvægur félagslegur og samfélagslegur stuðningur er fyrir konur á þessum tíma. Niðurstaða ritgerðarinnar var sú að félagslegur stuðningur frá maka, fjölskyldu og vinum geti komið í veg fyrir að konan fái þunglyndi og kvíða á meðgöngu og/eða eftir fæðingu barnsins. Að auki skiptir miklu máli að samfélagið styðji konur á meðgöngu sem og eftir barnsburð. Meðgöngu- og fæðingarþunglyndi er algengur sjúkdómur sem nauðsynlegt er að vera meðvitaður um og mikilvægt er fyrir konur að leita sér hjálpar ef þær finna fyrir einkennum þunglyndis og/eða kvíða á meðgöngu og/eða eftir barnsburð en hér á landi eru mörg sértæk stuðningsúrræði í boði fyrir konur sem glíma við þennan vanda.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Dagný Sif Snæbjarnardóttir 1986-
- Harpa Lind Örlygsdóttir 1984-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/17068
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/17068