Abstract
dc:description.abstractMelhveiti (xTriticoleymus) er blendingur hveiti (Triticum) og melgresis (Leymus) tegunda. Erfðamengi xTriticoleymus er áhugavert vegna þess að blendingurinn er frjór og mögulega hægt að rækta hann sem nytjaplöntu. Í þessari rannsókn voru litningar einangraðir úr rótarendum xTriticoleymus og skoðaður fjöldi litninga xTriticoleymus og aðgreint hversu margir kæmu úr hvorri foreldraplöntu með genomic in situ hybridization (GISH). Auk þess voru 18S-25S rDNA gen kortlögð með fluorescence in situ hybridization (FISH). Niðurstöður sýndu að xTriticoleymus hefði 2n=6x=42 með 30 hveitilitninga og 12 melgresislitninga. Ríbósómgenin sýndu að önnur foreldraplantan væri hveiti með genamengi sem innihéldi B genamengi ásamt erfðamengi frá dúnmel (Leymus mollis). Mögulegt er að tveir Leymus mollis litningar skiptist út fyrir tvo hveitilitninga í tegundablöndunarferlinu og hveitiforeldrið sé því ferlitna með 2n=4x=28 og AB genamengi. Kristinn Guðsteinsson æxlaði saman tveimur rósategundum og fékk blendinginn Rosa moyesii var fargesii x Rosa ˈDornröschenˈ sem vex enn í garði hans. Rosa ˈDornröschenˈ hefur verið ræktuð á Íslandi um nokkurt skeið og er móðurplantan sem notuð var í æxlun blendingsins. Í þessari rannsókn var leitast við að ákvarða litnun og litningafjölda þessara tveggja rósaafbrigða. Það var gert með því að einangra litninga úr sprotabrumum með protoplast-dropping aðferð. Niðurstöðurnar sýndu að Rosa ˈDornröschenˈ væri tvílitna með 2n=2x=14 og að breytileiki væri í litningafjölda innan blendingsins Rosa moyesii var fargesii x Rosa ˈDornröschenˈ. Sú fruma sem var með fæsta litninga hafði 2n=28 en sú sem hafði flesta var sexlitna með 2n=6x=42. Sexlitna fruman hefur hugsanlega komið til með náttúrulegri tvöföldun litninga þríblendingsfrumna.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Petra Landmark Guðmundsdóttir 1989-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/16970
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/16970