University of Iceland
Ungar ekkjur, áfallaviðbrögð í kjölfar andláts maka og úrvinnsla
Abstract
dc:description.abstractMarkmið rannsóknarinnar var að fá innsýn í reynslu kvenna af því að missa maka sinn þegar þær voru á aldrinum 25-45 ára og varpa ljósi á það hvernig þær tókust á við þann missi. Rannsakandi lagði áherslu á að fá innsýn í þá andlegu og félagslegu þætti sem konurnar þurfa að eiga við. Niðurstöður rannsóknarinnar veita mikilvæga innsýn í það ferli sem fer í gang við missi maka og hvaða þættir það eru sem konurnar eru líklegar til þess að finna fyrir í kjölfarið. Jafnframt gefa niðurstöðurnar góða vísbendingu um hvaða atriði aðstandendur og fagfólk geti haft í huga í starfi sínu og umgengni við ekkjur. Þetta er fyrsta rannsókn sinnar tegundar hér á landi og felst mikilvægi hennar því í nýmæli rannsóknarinnar og vonast rannsakandi til að með tilkomu hennar vakni áhugi annarra á málefnum þessara kvenna. Framkvæmd var eigindleg viðtalsrannsókn þar sem tekin voru viðtöl við sex konur sem höfðu misst maka sinn. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að þær hafi allar fundið fyrir vanlíðan í kjölfar andlátsins og allar nema ein töldu sig hafa orðið fyrir áfalli. Allar fundu þær fyrir ólíkum tilfinningalegum viðbrögðum en reiði og einmanaleiki voru algengustu tilfinningarnar hjá konunum. Allar gengu þær inn í ný hlutverk í lífi sínu. Niðurstöður sýndu einnig að félagslegur stuðningur hafði mikið að segja í bataferlinu og fjölskylda og vinir eiga stóran þátt í velgengni kvennanna við úrvinnslu á áfallinu. Að lokum sýndu niðurstöður að reynsla kvennanna einkenndist af bæði jákvæðu og neikvæðu viðmóti fólks í umhverfinu. Við greiningu gagna komu í ljós fjögur þemu sem hvert og eitt innihélt mismörg undirþemu. Þemun fjögur voru: andlegir þættir, félagslegir þættir, tengsl og úrvinnsla. Við greiningu gagnanna kom í ljós að aðkoma félagsráðgjafa á vel heima innan þessa málaflokks og geta þeir gegnt þýðingarmiklu hlutverki í vinnu með ekkjum. Lykilorð: Makamissir, ekkjur, sorg, sorgarviðbrögð, úrvinnsla, félagsráðgjöf.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Matthildur Jóhannsdóttir 1981-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/16953
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/16953