Back to results

University of Iceland

Jaðarskattar og tekjutengingar. Jaðarskerðingar af völdum skatta- og bótareglna á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Í ritgerð þessari er leitast við að svara rannsóknarspurningunni: Hver er virk jaðarskerðing (e. effective marginal tax rate) vegna viðbótartekjuöflunar á Íslandi? Til þess að svara spurningunni var tekið saman yfirlit yfir helstu lög og reglur um skatta, bætur og afslætti af sköttum og þjónustugjöldum, miðað við stöðuna 1. janúar 2013. Jaðarskerðingaráhrif þessa regluverks voru síðan greind og því næst tekin nokkur dæmi um hvernig ólíkar skerðingarreglur leggjast saman í rauntilvikum. Öll raundæmi sem reiknuð voru um virkar jaðarskerðingar áttu það sammerkt að skerðingarnar fóru vaxandi í fyrstu uns ákveðnu hámarki hafði verið náð – þá fóru þær minnkandi á nýjan leik. Í tilviki launþega sem áttu rétt á algengum bótategundum gátu skerðingar auðveldlega farið í 60–66%. Skerðingarnar gátu náð 77% þegar sjálfstæður atvinnurekstur átti í hlut. Námsmaður í vinnu með námi sem þáði húsaleigubætur gat lent í 84% jaðarskerðingu á ákveðnu bili. Við athugun regluverks kom einnig í ljós að sú staða getur alloft komið upp að aðilar tapi á viðbótarkrónu í tekjum. Krónutöluskattar, það er útvarspgjald og gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra, eru dæmi um slíkt en einnig afsláttur af fasteignagjöldum í Reykjavík og leikskólagjöldum í Hafnarfirði og Mosfellsbæ. Fari menn yfir tekjumörk sem skapa gjaldskyldu krónutöluskatts eða draga úr afsláttum verða þeir því verr settir nema þá og því aðeins að tekjuaukning þeirra sé veruleg. Í ritgerðinni er einnig bent á leiðir til þess að draga úr jaðarskerðingum, til dæmis með því að auka yfirsýn í málaflokknum, tryggja að allar skerðingar séu hlutfallslegar, yfirfara skerðingarreglur barnabóta og setja markmið um hámarks virka jaðarskerðingu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sverrir Teitsson 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/16560
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/16560

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sverrir Teitsson 1981-. Jaðarskattar og tekjutengingar. Jaðarskerðingar af völdum skatta- og bótareglna á Íslandi. 2013. http://hdl.handle.net/1946/16560