Back to results

University of Iceland

Leigusamningar. Drög að nýjum staðli í stað IAS 17

Abstract

dc:description.abstract

Efni þessarar ritgerðar eru nýútgefin drög að staðli um reikningshaldslega meðferð á leigusamningum (16. maí 2013), gefin út af Alþjóðlegu reikningsskilanefndinni (IASB) í samvinnu við bandarísku reikningsskilanefndina (FASB). Farið er stuttlega yfir núverandi staðal IAS 17 sem og starfsemi Alþjóðlegu reikningsskilanefndarinnar. Farið er yfir helstu breytingarnar í nýju drögunum og er áherslan lögð á breytingar í reikningsskilum leigutaka. Í ritgerðinni er farið yfir helstu gagnrýni á reikningshaldslega meðferð í nýju drögunum og farið yfir hvernig þau gætu mögulega haft áhrif á mismunandi atvinnugreinar. Sérstaklega eru skoðaðir ársreikningar hjá tveimur félögum sem skráð eru á markaði og skoðað hvernig nýju drögin gætu haft áhrif á kennitölur í reikningsskilum þeirra. Helstu áhrifin sem nýju drögin um reikningshaldslega meðferð á leigusamningum gæti haft í för með sér, verði þau að veruleika, eru að allir leigusamningar til lengri tíma en 12 mánaða munu koma fram í efnahagsreikningi sem og meirihluti þeirra samninga sem undir IAS 17 eru flokkaðir sem rekstarleigusamningar. Samkvæmt núverandi staðli IAS 17, um meðferð leigusamninga, eru rekstrarleigusamningar ekki færðir inn í efnahagsreikninginn og því mun sú aðferðarfræði sem kemur fram í nýju drögunum leiða til aukningar á eignum og skuldum félaga. Félög munu þurfa að færa inn nýtingarrétt og skuldbindingu vegna leigusamninganna og verður gjaldfærslan í rekstri með öðrum hætti, til dæmis verða færðar inn afskriftir en ekki leigugjöld í A-leigu og mun gjaldfærslan því hafa talsverð áhrif á rekstrarhagnað áður en tekið er tillit til afskrifta (EBIDTA).

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Daníel Örn Antonsson 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/16528
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/16528

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Daníel Örn Antonsson 1990-. Leigusamningar. Drög að nýjum staðli í stað IAS 17. 2013. http://hdl.handle.net/1946/16528