Back to results

University of Iceland

Nótan 2013 : „mestu verðlaunin eru reynslan“ : um gildi og áhrif tómstundatengdra viðburða

Abstract

dc:description.abstract

Vettvangur tómstunda er afar fjölbreyttur en þar spila viðburðir stórt hlutverk. Í tónlistarnámi, íþróttum og listum má finna fjölda ólíkra viðburða sem hver hafa sín gildi og markmið. Í verkefninu er þessi hluti tómstundastarfs kannaður. Markmið verkefnisins er að beina kastljósinu að gildum og áhrifum tómstundatengdra viðburða fyrir einstaklinga og samfélag. Verkefnið er heimildarmynd ásamt greinargerð þar sem Nótan – Uppskeruhátíð tónlistarskóla er í brennidepli. Byrjað verður á að gera grein fyrir Nótunni, markmiðum hátíðarinnar og fyrirkomulagi. Því næst verður heimildarmyndinni gerð skil en að því loknu farið í fræðilegt samhengi viðfangsefnisins. Hugtakið viðburður verður skilgreint og rætt um hvað felst í tómstundatengdum viðburðum. Fjallað verður um tómstundir, skilgreining hugtaksins reifuð og rætt um gildi og ávinning tómstundastarfs. Þar næst verður rætt um gildi viðburða í tómstundastarfi og hugsanleg áhrif á mótun sjálfsmyndarinnar. Að endingu er svo umræðukafli þar sem þræðir greinargerðarinnar eru dregnir saman. Von mín er að verkefnið varpi ljósi á mikilvægt hlutverk viðburða í tómstundastarfi og margvísleg áhrif þeirra fyrir einstaklinga og samfélag. Eins og umfjöllun mín leiðir í ljós þá hafa viðburðir í tómstundastarfi mikið gildi og áhrif þeirra fyrir einstaklinga og samfélag er ótvírætt.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Vigdís Erna Þorsteinsdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/16326
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/16326

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Vigdís Erna Þorsteinsdóttir 1986-. Nótan 2013 : „mestu verðlaunin eru reynslan“ : um gildi og áhrif tómstundatengdra viðburða. 2013. http://hdl.handle.net/1946/16326