Back to results

University of Iceland

Kostnaðarvirknigreining á lögleiðingu sænsks munntóbaks

Abstract

dc:description.abstract

Reykingar eru eitt stærsta sjálfskapaða heilsufarsvandmál í heiminum í dag og reyna stjórnvöld nær og fjær að draga úr tíðni reykinga auk samfélagslegum kostnaði sem þeim fylgja. Í Evrópu er hlutfall reykingamanna hvergi jafn lágt meðal karlmanna og í Svíþjóð en þar nýtur sænskt munntóbak eða „snus“ mikilla vinsælda. Sænskt munntóbak er töluvert skaðminna heilsunni en reyktóbak hefur verið flokkað sem reyklaus tóbaksvara með lágu magni krabbameinsvaldandi efna (e. Low-nitrosamine smokeless tobacco product). Áhugi hefur vaknað meðal fræðimanna um möguleika þess að nota sænskt munntóbak til að draga úr reykingum. Á Íslandi er innflutningur og sala á munntóbaki bönnuð lögum samkvæmt. Markmið þessarar ritgerðar er að bera saman hagræn og heilsufarsleg áhrif á núverandi löggjöf (bann á munntóbaki) við þá leið að lögleiða sölu og innflutning á sænsku munntóbaki. Skoðaðar verða mögulegar breytingar á neyslumynstri tóbaksneytanda við lögleiðingu og hvaða nettó heilsufarsleg áhrif slíkum breytingum gæti fylgt. Framkvæmd verður svokölluð kostnaðarvirknigreining þar sem mældur er kostnaður á hvert lífár ávinnst við lögleiðingu. Niðurstöður leiddu í ljós að reykingatíðni myndi lækka úr 14,5% niður í 12,1% en heildartóbaksneysla myndi aukast við lögleiðingu munntóbaks. Aftur á móti munu ávinnast 11.249 lífár sökum fjölda þeirra sem myndu hætta að reykja og skipta yfir í munntóbak. Einnig verður sparnaður í beinum heilbrigðiskostnaði um kr. 434 milljónir. Þar sem þessi aðferð er bæði ódýrari og hefur hærri virkni en núverandi fyrirkomulag er hún svokölluð ráðandi aðferð (e. dominant strategy) og er því kostnaðarskilvirk.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Tómas Gunnar Thorsteinsson 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/16299
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/16299

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Tómas Gunnar Thorsteinsson 1987-. Kostnaðarvirknigreining á lögleiðingu sænsks munntóbaks. 2013. http://hdl.handle.net/1946/16299