University of Iceland
Líkamsímynd og megrun meðal framhaldsskólanema. Þróun á tímabilinu 2000-2010
Abstract
dc:description.abstractMarkmið: Tilgangur rannsóknarinnar var að meta breytingar á líkamsímynd og tíðni megrunar meðal íslenskra unglinga á aldrinum 16-19 ára á árunum 2000-2010. Aðferð: Borin voru saman gögn ,,Rannsókna og greiningar“ frá spurningakönnunum sem lagðar voru fyrir nemendur í 26 framhaldsskólum víðs vegar á landinu á fjórum tímapunktum (2000, 2004, 2007 og 2010). Alls tóku 33.381 nemendur þátt í rannsókninni; 16.085 drengir og 17.615 stúlkur. Meðalaldur þátttakenda var 17,3 ár. Niðurstöður: Líkamsímynd 16-19 ára unglinga á Íslandi batnaði marktækt á þeim 10 árum sem rannsóknin náði yfir. Stúlkur mældust með neikvæðari líkamsímynd en drengir á öllum tímapunktum. Megrun var mun algengari meðal stúlkna en drengja á öllum tímapunktum. Hlutfall stúlkna sem hafði farið í megrun síðastliðna 12 mánuði minnkaði hins vegar marktækt á tímabilinu en jókst marktækt meðal drengja þannig að bil milli kynja minnkaði. Ályktanir: Líklegt er að ólíkar ástæður búi að baki megrun og neikvæðri líkamsímynd hjá kynjunum sem geti skýrt kynjamun í þróun og tíðni þessara þátta.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Guðrún Ingólfsdóttir 1974-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- en
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/15683
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/15683