Back to results

University of Iceland

Félagslegur stuðningur og andleg líðan í kjölfar efnahagsþrenginganna á Íslandi 2008: Framsýn ferilrannsókn

Abstract

dc:description.abstract

Efnahagsþrengingar geta haft fjölþættar afleiðingar fyrir einstaklinga, fjárhagslegar, líkamlegar, andlegar og félagslegar. Lítið er vitað um áhrif félagslegs stuðnings á samband efnahagsþrenginga og andlegrar heilsu. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna breytingar á félagslegum stuðningi frá árinu 2007 (fyrir efnahagsþrengingarnar á Íslandi 2008) til ársins 2009 (í efnahagsþrengingunum) og einnig áhrif félagslegs stuðnings á samband efnahagshrunsins á streitu og þunglyndiseinkenni. Rannsóknin var framsýn ferilrannsókn sem náði til 3621 einstaklings sem svaraði spurningalistanum Heilsa og líðan Íslendinga bæði árið 2007 og 2009 um margvíslega heilsutengda þætti, s.s. upplifaðan félagslegan stuðning, streitu og einkenni þunglyndis. Upplifaður félagslegur stuðningur, bæði traust til nákominna og aðgengi að aðstoð frá nákomnum, var metinn með frumsömdum spurningum. Streita var metin með streitukvarðanum PSS-4 (Perceived Stress Scale) og einkenni þunglyndis með WHO-5 kvarðanum (WHO-five Well-being Index). Félagslegur stuðningur jókst milli 2007 og 2009 [traust: 41.29 - 44.32%; p=0.021 │ hjálp: 45.04 - 48.91%; p=0.001]. Streita [traust: aOR = 1.81; 95% CI 1.15 – 2.85 | hjálp: aOR = 3.13; 95% CI 2.01 – 4.86] og þunglyndiseinkenni [traust: aOR = 1.73; 95% CI 1.27 – 2.35 | hjálp: aOR = 2.05; 95% CI 1.48 – 2.82 ] jukust marktækt meðal þeirra einstaklinga sem höfðu minni félagslegan stuðning árið 2009 samanborið við árið 2007. Þunglyndiseinkenni jukust einnig meðal þess hóps sem hafði lítinn félagslegan stuðning bæði árið 2007 og 2009. Streita jókst einnig meðal þess hóps sem hafði góðan félagslegan stuðning (traust) bæði árið 2007 og 2009. Á hinn bóginn þá var gagnlíkindahlutfall (odds ratio) á þunglyndiseinkennum hærra hjá þeim sem höfðu aukinn félagslegan stuðning (hjálp) milli ára [aOR= 0.71; 95% CI 0.53 – 0.96] en samsvarandi niðurstöður varðandi streitu reyndust ekki marktækar. Niðurstöður þessar benda til þess að upplifaður félagslegur stuðningur hafi aukist í kjölfar efnahagshrunsins á Íslandi árið 2008. Niðurstöðurnar benda einnig til þess að breytingar á upplifuðum félagslegum stuðningi í efnahagsþrengingum hafi áhrif á þróun andlegrar vanheilsu, þá sérstaklega þunglyndiseinkenna. Frekari rannsókna er þörf til að kanna langtímaafleiðingar efnahagsþrenginga á andlega heilsu og einnig þátt félagslegs stuðnings í þessu sambandi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helga Margrét Clarke 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
en

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/15421
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/15421

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helga Margrét Clarke 1983-. Félagslegur stuðningur og andleg líðan í kjölfar efnahagsþrenginganna á Íslandi 2008: Framsýn ferilrannsókn. 2013. http://hdl.handle.net/1946/15421