Abstract
dc:description.abstractÁrið 2010 áttu sér stað tvö tengd eldgos í Eyjafjallajökli. Fyrra gosið var hraungos sem kom upp á Fimmvörðuhálsi en það seinna var sprengigos sem kom úr megingíg jökulsins. Gosin vöktu mikla athygli og þá sérstaklega hið seinna sem hafði víðtæk áhrif um alla Evrópu. Afmyndun jarðskorpunnar hefur verið skoðuð í nágrenni við jökulinn þar sem að sjá má merki um innskot undir austurhlíð hans. Það sem hefur þó minna verið skoðað er afmyndun jarðskorpunnar lengra frá jöklinum og er það helsti tilgangur þessa verkefnis. Áhrif Eyjafjallajökuls eru könnuð á afmyndun jarðskorpunnar í um 100 km geisla í kringum hann. Greinilegt er að eldgosin höfðu mikil áhrif á afmyndun jarðskorpunnar þar sem að GPS-stöðvar í 17 til 100 km fjarlægð hreyfðust allar í átt að jöklinum yfir óróatímabil eldstöðvarinnar. Mesta færslan í átt að jökli var um 25 mm og sú minnsta um 2 mm. Mesta færslan þvert á stefnuna að jöklinum var um 2 mm svo að áhrif eldgossins eru greinileg. Hreyfing stöðvanna í átt að jöklinum gefur til kynna að kvika hafi komið frá miklu dýpi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sölvi Þrastarson 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 1Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/15309
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/15309