University of Iceland
Kvikmyndir úr kuldanum. Pólítísk þemu í þremur kvikmyndum Inúíta
Abstract
dc:description.abstractViðfangsefni þessarar ritgerðar er kvikmyndagerð frumbyggja. Í ritgerðini fjalla ég aðallega um kvikmyndagerð Inúíta í Kanada og einblíni einkum á Fast Runner þríleikinn en kvikmyndir þríleiksins, Atanarjuat: The Fast Runner, The Journals of Knud Rasmussen og Before Tomorrow voru framleiddar í bænum Igloolik í Nunavut héraði Kanada. Ég greini inntak myndanna og áhrif þeirra bæði í Nunavut og í víðara samhengi Norður-Ameríku. Greining mín á myndunum og boðskap þríleiksins tekur að miklu leyti mið af pólítísku þema kvikmyndanna. Ég styðst við greiningu Huhndorf (2003) og Raheja (2007) og í samanburði kvikmyndanna nota ég strúktúralíska greiningu Lévi-Strauss. Ég held því fram að kvikmyndirnar séu hápólítískar. Þær senda skilaboð til samfélaga Inúíta um mikilvægi þess að varðveita eigin menningu og eru gagnrýnar á skaðsemi kanadískra stjórnvalda og vestrænna áhrifa á samfélög og menningu Inúíta. Í alþjóðlegu samhengi eru kvikmyndirnar ekki síst skilaboð um yfirráðarétt Inúíta yfir heimkynnum sínum í Norður-Kanada og leggja einnig sitt að mörkum við að afbyggja staðalímyndir Vesturlandabúa af Inúítum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sturla Óskarsson 1987-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/14947
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/14947