Back to results

University of Iceland

Áhrif fjölmiðla á viðhorf fólks til innflytjenda

Abstract

dc:description.abstract

Íslenskt samfélag hefur breyst gríðarlega undanfarin ár, úr því að vera samfélag þar sem íbúarnir tala sama tungumál og hafa svipaðan menningarlegan bakgrunn yfir í samfélag fólks með fjölbreytt móðurmál og ólíkan menningarlegan bakgrunn. Fjölmiðlar eru stór upplýsingaveita, þeir draga upp ákveðna mynd af raunveruleikanum fyrir almenning og eru eitt af áhrifaríkustu öflum samtímans í að móta skoðanir og viðhorf fólks um allan heim. Hér verður skoðað á hvaða hátt fjölmiðlar fjalla um innflytjendur og lagt mat á hvort umfjöllun um þá hér á landi sé jákvæð, neikvæð eða hlutlaus. Settar verða fram hugmyndir fræðimanna um fjölmiðla sem fjórða valdið, innrömmunar- og dagskráráhrif og rýnt í stimplunarkenninguna. Dæmi verða tekin til að sýna áhrifamátt fjölmiðla í umfjöllun þeirra um innflytjendur. Meginniðurstöður eru þær að fjölmiðlar hafa tilhneigingu til að draga upp ákveðna staðalmynd af innflytjendum sem leiðir til neikvæðra viðhorfa frá samfélaginu. Kemur það meðal annars fram í fyrri rannsóknum og blaðagreinum bæði erlendis og á Íslandi. Þessar upplýsingar geta nýst til frekari uppbyggingar á jákvæðu fjölmenningarlegu samfélagi á Íslandi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Tinna Björk Helgadóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/14936
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/14936

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Tinna Björk Helgadóttir 1987-. Áhrif fjölmiðla á viðhorf fólks til innflytjenda. 2013. http://hdl.handle.net/1946/14936