Back to results

University of Iceland

Réttur til áfrýjunar refsidóma í ljósi 2. gr. 7. viðauka Mannréttindasáttmála Evrópu

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er fjallað um rétt manna til áfrýjunar refsidóms samkvæmt þjóðréttarlegum skuldbindingum Íslands, einkum og aðallega með hliðsjón af 2. gr. 7. viðauka Mannréttindasáttmála Evrópu (MSE.) Markmið ritgerðarinnar er að rannsaka hvernig íslenska ríkið uppfyllir skyldur sínar í ljósi 2. gr. 7. viðauka MSE. Felst rannsóknin fyrst og fremst í greiningu á fyrirliggjandi úrlausnum Mannréttindadómstóls Evrópu (MDE) og Mannréttindanefndar Evrópu (MNE). Haft var að leiðarljósi að finna viðmið sem svo mætti bera saman við íslenskan rétt. Ritgerðina mætti því líta á sem tvo sjálfstæða hluta að því er efnistök varðar. Í fyrri hlutanum er þannig einkum fjallað um ákvæði 2. gr. 7. viðauka MSE um rétt manna til áfrýjunar refsidóma. Í þeim síðari er fjallað um hvernig búið er um réttarverndina í íslenskum rétti. Leitast er við að greina þá aðferðafræði sem beitt er við mat á því hvort réttarverndin sé til staðar af hálfu MDE. Fjallað er um þær kröfur sem gerðar eru til aðildarríkja um úrræði til endurskoðunar refsidóma og loks hverjar heimilar takmarkanir eru. Fjallað er um íslenska löggjöf í ljósi þessa. Fyrst verður vikið að lagaheimildum sem um áfrýjun gilda. Því næst verður fjallað um málsmeðferð þegar dómum er áfrýjað. Að því loknu er fjallað um þá endurskoðun æðri dóms sem úrræðið felur í sér. Samhliða þessari umfjöllun eru rakin sjónarmið úr fyrri hluta ritgerðarinnar í þeim tilgangi að greina mögulega takmarkandi þætti hér á landi er varða áfrýjun refsidóma, með hliðsjón af þjóðréttarlegum skuldbindingum íslenska ríkisins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðmundur Þórir Steinþórsson 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/14852
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/14852

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðmundur Þórir Steinþórsson 1986-. Réttur til áfrýjunar refsidóma í ljósi 2. gr. 7. viðauka Mannréttindasáttmála Evrópu. 2013. http://hdl.handle.net/1946/14852