Back to results

University of Iceland

Ólöglegu vopnasalarnir kvaddir? Vopnaviðskiptasamningur Sameinuðu þjóðanna og kynbundið ofbeldi

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur ritgerðarinnar var að komast að því hvort the Arms Trade Treaty (ATT) verði sterkur samningur og hvort hann muni auka öryggi kvenna í heiminum. Ritgerðin er heimildaritgerð og frumrannsókn. Stuðst var við fræðilegar heimildir, fréttir í rauntíma, opinber gögn og viðtöl. ATT samningurinn var samþykktur með kosningu aðildarríkja á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 2. apríl 2013. Það þurfa a.m.k. 50 ríki að fullgilda samninginn til þess að hann verði að alþjóðalögum. Samningurinn nær aðeins yfir ríki sem fullgilda hann. Takmark hans er að hindra vopnasölu þar sem vopnin verða notuð til mannréttindabrota, mannúðarbrota, í glæpsamlegum tilgangi o.s.fv. Ísland var í forsvari fyrir því að fá inn í samninginn ákvæði um kynbundið ofbeldi. Þá skiptir miklu máli að Bandaríkin fullgildi samninginn þar sem þau eiga stærstu markaðshlutdeildina í alþjóðlegri vopnasölu. Samningurinn ber einkenni frjálslyndisstefnu, mótunarhyggju og femínisma. Ekki er enn víst hvaða lönd muni fullgilda samninginn en til þess að samningurinn verði sterkur þurfa stærstu innflutnings- og útflutningsríki á vopnum að fullgilda hann. Öryggi kvenna er hægt að auka með samningnum en framkvæmd hans og eftirlit skiptir miklu máli í því samhengi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Birta Austmann Bjarnadóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
en

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/14845
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/14845

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Birta Austmann Bjarnadóttir 1989-. Ólöglegu vopnasalarnir kvaddir? Vopnaviðskiptasamningur Sameinuðu þjóðanna og kynbundið ofbeldi. 2013. http://hdl.handle.net/1946/14845