{"id":{"repo_id":"u-iceland","oai_identifier":"oai:skemman.is:1946/1442"},"canonical_url":"https://search.dev.ndltd.org/etd/u-iceland/oai:skemman.is:1946/1442","repository":{"repo_id":"u-iceland","name":"University of Iceland","base_url":"https://skemman.is/oai/request"},"display":{"title":"Hreyfing barna í skólanum : rannsókn á tengslum milli ástands skólalóðar og hreyfingar barna í frímínútum","abstract":"Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort tengsl séu á milli ástands skólalóða og hreyfingar barna í frímínútum. Jafnframt að kanna hvort börn sem eru líkamlega virkari í frímínútum séu einnig virkari eftir skóla og um helgar, hvort tengsl séu á milli líkamsþyngdarstuðuls og hreyfingar, hvort samband sé milli hreyfingar í frímínútum og þess að finnast skemmtilegt í frímínútum og hvort munur sé á hreyfingu milli kynja. Þátttakendur voru 98 börn, 47 stelpur og 51 strákur, í fjórða bekk í tveimur grunnskólum í Reykjavík. Lagður var fyrir spurningalisti um líðan barnanna í skólanum, hreyfingu og íþróttaiðkun í og utan skóla og sjálfstætt mat barnanna á skólalóðinni. Notast var við hreyfimæla sem börnin voru með um mittið í viku en þeir mældu ákefð hreyfingar barnanna. Hæð og þyngd var mæld til að finna út líkamsþyngdarstuðul. Vettvangskönnun var gerð til að sjá hvað börnin voru að gera og hvar á lóðinni þau léku sér í lengstu frímínútum dagsins. Helstu niðurstöður voru að ekki fannst marktækur munur á hreyfingu barna á milli skólanna. Þó svo að ekki hafi verið um tölfræðilega marktækan mun á hreyfingu að ræða er hugsanlegt að börnin séu engu að síður virkari í skólanum með betur útbúinni lóð vegna þess að meðaltalstölur hreyfimælanna voru hærri hjá þeim. Niðurstaðan úr vettvangskönnuninni var sú að börnin á verr útbúinni lóð virtust vera minna í leikjum en börnin á betur útbúinni lóð. Þar sem munur var á leiknum bendir það til þess að tengsl séu á milli hreyfingar í frímínútum og ástands skólalóða. Þau börn sem hreyfðu sig meira í frímínútum hreyfðu sig einnig meira eftir skóla og um helgar sem segir að þau börn sem eru virkari í daglegum störfum eru einnig virkari á skólatíma. Ekki var fylgni á milli hreyfingar og þess að finnast skemmtilegt í frímínútum og því virðist að þeir sem eru virkir og óvirkir finnist jafn skemmtilegt í frímínútum. Strákar hreyfðu sig marktækt meira en stelpur í frímínútum, eftir skóla og um helgar.","abstract_html":"Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort tengsl séu á milli ástands skólalóða og hreyfingar barna í frímínútum. Jafnframt að kanna hvort börn sem eru líkamlega virkari í frímínútum séu einnig virkari eftir skóla og um helgar, hvort tengsl séu á milli líkamsþyngdarstuðuls og hreyfingar, hvort samband sé milli hreyfingar í frímínútum og þess að finnast skemmtilegt í frímínútum og hvort munur sé á hreyfingu milli kynja. Þátttakendur voru 98 börn, 47 stelpur og 51 strákur, í fjórða bekk í tveimur grunnskólum í Reykjavík. Lagður var fyrir spurningalisti um líðan barnanna í skólanum, hreyfingu og íþróttaiðkun í og utan skóla og sjálfstætt mat barnanna á skólalóðinni. Notast var við hreyfimæla sem börnin voru með um mittið í viku en þeir mældu ákefð hreyfingar barnanna. Hæð og þyngd var mæld til að finna út líkamsþyngdarstuðul. Vettvangskönnun var gerð til að sjá hvað börnin voru að gera og hvar á lóðinni þau léku sér í lengstu frímínútum dagsins. Helstu niðurstöður voru að ekki fannst marktækur munur á hreyfingu barna á milli skólanna. Þó svo að ekki hafi verið um tölfræðilega marktækan mun á hreyfingu að ræða er hugsanlegt að börnin séu engu að síður virkari í skólanum með betur útbúinni lóð vegna þess að meðaltalstölur hreyfimælanna voru hærri hjá þeim. Niðurstaðan úr vettvangskönnuninni var sú að börnin á verr útbúinni lóð virtust vera minna í leikjum en börnin á betur útbúinni lóð. Þar sem munur var á leiknum bendir það til þess að tengsl séu á milli hreyfingar í frímínútum og ástands skólalóða. Þau börn sem hreyfðu sig meira í frímínútum hreyfðu sig einnig meira eftir skóla og um helgar sem segir að þau börn sem eru virkari í daglegum störfum eru einnig virkari á skólatíma. Ekki var fylgni á milli hreyfingar og þess að finnast skemmtilegt í frímínútum og því virðist að þeir sem eru virkir og óvirkir finnist jafn skemmtilegt í frímínútum. Strákar hreyfðu sig marktækt meira en stelpur í frímínútum, eftir skóla og um helgar.","abstract_has_math":false,"creators":["Nína Dóra Óskarsdóttir","Ragnheiður Magnúsdóttir","Sara Sigurðardóttir"],"institution":null,"degree_name":null,"degree_level":null,"degree_discipline":null,"degree_department":null,"school":null,"contributors":["Háskóli Íslands"],"advisors":[],"committee_chairs":[],"committee_members":[],"year":2007,"date_issued":"2007-12-13T14:29:06Z","date_published":"2007-12-13T14:29:06Z","updated_at":"2026-07-27T21:38:09Z","subjects":["Hreyfing","Börn","Skólalóðir","Frímínútur"],"languages":["is"],"rights":[],"rights_urls":[],"identifier_entries":[]},"links":{"outbound_url":"http://hdl.handle.net/1946/1442","outbound_label":"Handle","outbound_source":"dc:identifier.uri"},"metadata_groups":[{"id":"people","label":"People","entries":[{"key":"dc:contributor","label":"Contributor","values":["Háskóli Íslands"]},{"key":"dc:creator","label":"Author","values":["Nína Dóra Óskarsdóttir","Ragnheiður Magnúsdóttir","Sara Sigurðardóttir"]}]},{"id":"academic_context","label":"Academic Context","entries":[{"key":"dc:date.accessioned","label":"Dc Date Accessioned","values":["2007-12-13T14:29:06Z"]},{"key":"dc:date.available","label":"Dc Date Available","values":["2007-12-13T14:29:06Z"]},{"key":"dc:date.issued","label":"Date","values":["2007-12-13T14:29:06Z"]},{"key":"dc:type","label":"Dc Type","values":["Thesis"]}]},{"id":"subjects_keywords","label":"Subjects and Keywords","entries":[{"key":"dc:subject","label":"Dc Subject","values":["Hreyfing","Börn","Skólalóðir","Frímínútur"]}]},{"id":"language_rights","label":"Language and Rights","entries":[{"key":"dc:language.iso","label":"Language (ISO)","values":["is"]}]},{"id":"identifiers","label":"Identifiers","entries":[{"key":"dc:identifier.uri","label":"Identifier URI","values":["http://hdl.handle.net/1946/1442"]}]},{"id":"additional","label":"Additional Metadata","entries":[{"key":"dc:description.abstract","label":"Abstract","values":["Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort tengsl séu á milli ástands skólalóða og hreyfingar barna í frímínútum. Jafnframt að kanna hvort börn sem eru líkamlega virkari í frímínútum séu einnig virkari eftir skóla og um helgar, hvort tengsl séu á milli líkamsþyngdarstuðuls og hreyfingar, hvort samband sé milli hreyfingar í frímínútum og þess að finnast skemmtilegt í frímínútum og hvort munur sé á hreyfingu milli kynja. Þátttakendur voru 98 börn, 47 stelpur og 51 strákur, í fjórða bekk í tveimur grunnskólum í Reykjavík. Lagður var fyrir spurningalisti um líðan barnanna í skólanum, hreyfingu og íþróttaiðkun í og utan skóla og sjálfstætt mat barnanna á skólalóðinni. Notast var við hreyfimæla sem börnin voru með um mittið í viku en þeir mældu ákefð hreyfingar barnanna. Hæð og þyngd var mæld til að finna út líkamsþyngdarstuðul. Vettvangskönnun var gerð til að sjá hvað börnin voru að gera og hvar á lóðinni þau léku sér í lengstu frímínútum dagsins. Helstu niðurstöður voru að ekki fannst marktækur munur á hreyfingu barna á milli skólanna. Þó svo að ekki hafi verið um tölfræðilega marktækan mun á hreyfingu að ræða er hugsanlegt að börnin séu engu að síður virkari í skólanum með betur útbúinni lóð vegna þess að meðaltalstölur hreyfimælanna voru hærri hjá þeim. Niðurstaðan úr vettvangskönnuninni var sú að börnin á verr útbúinni lóð virtust vera minna í leikjum en börnin á betur útbúinni lóð. Þar sem munur var á leiknum bendir það til þess að tengsl séu á milli hreyfingar í frímínútum og ástands skólalóða. Þau börn sem hreyfðu sig meira í frímínútum hreyfðu sig einnig meira eftir skóla og um helgar sem segir að þau börn sem eru virkari í daglegum störfum eru einnig virkari á skólatíma. Ekki var fylgni á milli hreyfingar og þess að finnast skemmtilegt í frímínútum og því virðist að þeir sem eru virkir og óvirkir finnist jafn skemmtilegt í frímínútum. Strákar hreyfðu sig marktækt meira en stelpur í frímínútum, eftir skóla og um helgar."]},{"key":"dc:title","label":"Title","values":["Hreyfing barna í skólanum : rannsókn á tengslum milli ástands skólalóðar og hreyfingar barna í frímínútum"]}]}],"canonical_facts":{"dc:contributor":["Háskóli Íslands"],"dc:creator":["Nína Dóra Óskarsdóttir","Ragnheiður Magnúsdóttir","Sara Sigurðardóttir"],"dc:date.accessioned":["2007-12-13T14:29:06Z"],"dc:date.available":["2007-12-13T14:29:06Z"],"dc:date.issued":["2007-12-13T14:29:06Z"],"dc:description.abstract":["Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort tengsl séu á milli ástands skólalóða og hreyfingar barna í frímínútum. Jafnframt að kanna hvort börn sem eru líkamlega virkari í frímínútum séu einnig virkari eftir skóla og um helgar, hvort tengsl séu á milli líkamsþyngdarstuðuls og hreyfingar, hvort samband sé milli hreyfingar í frímínútum og þess að finnast skemmtilegt í frímínútum og hvort munur sé á hreyfingu milli kynja. Þátttakendur voru 98 börn, 47 stelpur og 51 strákur, í fjórða bekk í tveimur grunnskólum í Reykjavík. Lagður var fyrir spurningalisti um líðan barnanna í skólanum, hreyfingu og íþróttaiðkun í og utan skóla og sjálfstætt mat barnanna á skólalóðinni. Notast var við hreyfimæla sem börnin voru með um mittið í viku en þeir mældu ákefð hreyfingar barnanna. Hæð og þyngd var mæld til að finna út líkamsþyngdarstuðul. Vettvangskönnun var gerð til að sjá hvað börnin voru að gera og hvar á lóðinni þau léku sér í lengstu frímínútum dagsins. Helstu niðurstöður voru að ekki fannst marktækur munur á hreyfingu barna á milli skólanna. Þó svo að ekki hafi verið um tölfræðilega marktækan mun á hreyfingu að ræða er hugsanlegt að börnin séu engu að síður virkari í skólanum með betur útbúinni lóð vegna þess að meðaltalstölur hreyfimælanna voru hærri hjá þeim. Niðurstaðan úr vettvangskönnuninni var sú að börnin á verr útbúinni lóð virtust vera minna í leikjum en börnin á betur útbúinni lóð. Þar sem munur var á leiknum bendir það til þess að tengsl séu á milli hreyfingar í frímínútum og ástands skólalóða. Þau börn sem hreyfðu sig meira í frímínútum hreyfðu sig einnig meira eftir skóla og um helgar sem segir að þau börn sem eru virkari í daglegum störfum eru einnig virkari á skólatíma. Ekki var fylgni á milli hreyfingar og þess að finnast skemmtilegt í frímínútum og því virðist að þeir sem eru virkir og óvirkir finnist jafn skemmtilegt í frímínútum. Strákar hreyfðu sig marktækt meira en stelpur í frímínútum, eftir skóla og um helgar."],"dc:identifier.uri":["http://hdl.handle.net/1946/1442"],"dc:language.iso":["is"],"dc:subject":["Hreyfing","Börn","Skólalóðir","Frímínútur"],"dc:title":["Hreyfing barna í skólanum : rannsókn á tengslum milli ástands skólalóðar og hreyfingar barna í frímínútum"],"dc:type":["Thesis"]},"updated_at":"2026-07-27T21:38:09Z"}