University of Iceland
Íþróttafréttamennska á Íslandi. Íþróttaumfjöllun um karla og konur á íslenskum vefmiðlum
Abstract
dc:description.abstractMarkmiðið með rannsókninni var að komast að því hvort sama ójafnvægi væri í umfjöllun um karla og konur í íþróttum á íslenskum vefmiðlum og eldri rannsóknir hafa sýnt að sé tilfellið í dagblöðum og sjónvarpi. Megindleg rannsókn var gerð á íþróttafréttum á vefmiðlunum Mbl.is, Rúv.is og Vísir.is á árinu 2011. Við flokkun frétta var annars vegar miðað við fjölda frétta í hverjum flokki og hins vegar var fréttum skipt í þrjá flokka eftir umfangi. Þá var umfjöllun vefmiðlanna þriggja borin saman. Meginniðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að sama ójafnvægis gæti á vefmiðlum og á öðrum tegundum miðla. Ellefu prósent frétta fjalla um íþróttir kvenna en hlutfallið hækkar í fjórtán prósent þegar umfangsmestu fréttirnar eru skoðaðar einar og sér. Mikill meirihluti frétta af konum fjalla um Íslendinga en aðeins helmingur frétta af körlum. Þá er mun algengara að vitnað sé í karla í fréttum af körlum en konur í fréttum af konum. Fréttir af knattspyrnu, handbolta og körfubolta eru í brennidepli á íslenskum vefmiðlum og er knattspyrna í algjörum sérflokki. Í meirihluta frétta er enginn viðmælandi eða tilvitnun. Rúv.is flytur hlutfallslega flestar fréttir af íþróttum kvenna miðað við fjölda frétta. Umfang frétta af konum á Mbl.is og Vísir.is er þó mun meira.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Kolbeinn Tumi Daðason 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/13757
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/13757