Back to results

University of Iceland

Atvinnusköpun í dreifbýli út frá kynjasjónarmiði

Abstract

dc:description.abstract

Í eftirfarandi ritgerð er fjallað um misjöfn tækifæri fólks út frá kynjasjónarmiði, í ljósi búsetu í dreifbýli, atvinnuhátta og atvinnusköpunar með hliðsjón af aðkomu hins opinbera, ekki síst hvað snertir byggðastefnu og sértækar aðgerðir í atvinnumálum og viðhorf fólks til þeirra. Til að komast að sem fjölbreytilegustum viðhorfum um þessi efni var farin sú leið að gera eigindlega rannsókn og ræða við tíu einstaklinga með reynslu af atvinnurekstri á Vestfjörðum. Þeir voru spurðir um reynslu sína og viðhorf til aðgerða stjórnvalda og framtíðarsýn. Svör þeirra voru misjöfn, en óhætt er að fullyrða að nokkurrar tortryggni gætti meðal þeirra í garð stjórnvaldsaðgerða, þótt vissulega hefðu sumir haft hag af þeim. Flestum fannst best að treysta öðru fremur á sjálfa sig. Á þetta ekki síst við um konur, sem hafa rekið sig á að þær búa við önnur skilyrði en karlar þar sem hvers konar fyrirgreiðsla er annars vegar. Kemur þetta heim og saman við þá staðreynd að samþætting kynjasjónarmiða hefur í raun ekki verið notuð í opinberri stefnumótun í atvinnumálum í dreifbýli.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigurbjörg K. Ásgeirsdóttir 1958-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/13675
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/13675

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigurbjörg K. Ásgeirsdóttir 1958-. Atvinnusköpun í dreifbýli út frá kynjasjónarmiði. 2013. http://hdl.handle.net/1946/13675