Back to results

University of Iceland

Áhrif íslenska efnahagshrunsins á hagsmunahópa listamanna: Álit hagsmunahópa á niðurskurði og stefnubreytingu stjórnvalda til menningarmála

Abstract

dc:description.abstract

Í kjölfar efnahagshruns haustið 2008 hafa stjórnvöld þurft að skera niður, hagræða og forgangsraða verkefnum sínum og fjármögnun. Menningar- og listastarfsemi hefur ekki verið undanskilin niðurskurði og hafa hagsmunahópar listamanna haft skiptar skoðanir á þeim aðgerðum sem stjórnvöld hafa farið í. Gerð var eigindleg rannsókn sem byggir annars vegar á viðtölum við fólk sem starfar við menningar- og listastarfsemi og hins vegar á skriflegum heimildum til að kanna áhrif efnahagshrunsins á hagsmunahópa listamanna og álit þeirra á niðurskurði og stefnubreytingu stjórnvalda í menningarmálum. Listgreinar hafa fundið misjafnlega mikið fyrir niðurskurðinum. Þetta ástand hefur kallað á hugsanlegar breytingar í stjórnsýslu sem varða útdeilingu fjármagns til listgreina. Lögbundnir sjóðir virðast vera ákjósanlegir þar sem fagnefndir útdeila fjármagni til ólíkra listgreina. Þessir sjóðir lúta reglu um hæfilega fjarlægð og eru óháðir pólitískum áhrifum. Endurgreiðsla til kvikmyndagerðar er fyrirferðameiri á árunum eftir efnahagshrun og var endurgreiðslan aukin á sama tíma og skorið var niður fjármagn til úthlutunar úr kvikmyndasjóði. Hagræn áhrif menningar og lista verða sífellt meiri. Listastarfsemi tengist mörgum greinum með ýmsum hætti og er það álit viðmælenda að efnahagslegt mikilvægi listgreina megi meðal annars sjá í fjölda ferðamanna sem komi til landsins í tengslum við menningartengda ferðaþjónustu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Bjarni Bjarnason 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/13662
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/13662

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Bjarni Bjarnason 1981-. Áhrif íslenska efnahagshrunsins á hagsmunahópa listamanna: Álit hagsmunahópa á niðurskurði og stefnubreytingu stjórnvalda til menningarmála. 2013. http://hdl.handle.net/1946/13662