Back to results

University of Iceland

Sálvefræn einkenni barna: Þýðing mælitækis á kvíðaröskunum

Abstract

dc:description.abstract

Stór hluti barna og unglinga finnur reglulega fyrir sálvefrænum einkennum eins og verkjum í kvið eða höfði og fer tíðni þeirra vaxandi. Stúlkur eru líklegri en drengir til að finna fyrir þessum einkennum og virðist algengi aukast á unglingsárum. Erfitt getur reynst að finna haldbærar skýringar á einkennunum, en talið er að sálvefræn einkenni hjá barni geti bent til alvarlegra sálrænna eða félagslegra vandamála. Tilgangur rannsóknarinnar var tvíþættur. Annars vegar að gera fræðilega samantekt á helstu ástæðum sálvefrænna einkenna, áhættu-þáttum, afleiðingum og meðferðarúrræði, með áherslu á kynjamun og aldurinn 10-13 ára; og hins vegar að þýða og forprófa mælitækið Skimun fyrir kvíðatengdum röskunum meðal barna (SCARED). Mælitækið var hannað af Boris Birmaher og samstarfsfélögum í Bandaríkjunum árið 1997 og hefur þótt réttmætt og áreiðanlegt við greiningu kvíðaraskana. Mælitækið var lagt fyrir fimm skólahjúkrunarfræðinga og tvo sálfræðinga sem gáfu ábendingar og settu fram athugasemdir í þeim tilgangi að auka gæði og réttmælti íslenskrar útgáfu mælitækisins. Vonast er til að mælitækið geti nýst íslenskum skólahjúkrunar-fræðingum til að bera kennsl á kvíða hjá börnum svo þau geti fengið viðeigandi aðstoð og stuðning sem fyrst. Lykilorð: sálvefræn einkenni, börn, unglingar, skimun, verkir, streita og kvíði.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigríður Birta Kjartansdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/13282
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/13282

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigríður Birta Kjartansdóttir 1986-. Sálvefræn einkenni barna: Þýðing mælitækis á kvíðaröskunum. 2012. http://hdl.handle.net/1946/13282