Abstract
dc:description.abstractStór hluti barna og unglinga finnur reglulega fyrir sálvefrænum einkennum eins og verkjum í kvið eða höfði og fer tíðni þeirra vaxandi. Stúlkur eru líklegri en drengir til að finna fyrir þessum einkennum og virðist algengi aukast á unglingsárum. Erfitt getur reynst að finna haldbærar skýringar á einkennunum, en talið er að sálvefræn einkenni hjá barni geti bent til alvarlegra sálrænna eða félagslegra vandamála. Tilgangur rannsóknarinnar var tvíþættur. Annars vegar að gera fræðilega samantekt á helstu ástæðum sálvefrænna einkenna, áhættu-þáttum, afleiðingum og meðferðarúrræði, með áherslu á kynjamun og aldurinn 10-13 ára; og hins vegar að þýða og forprófa mælitækið Skimun fyrir kvíðatengdum röskunum meðal barna (SCARED). Mælitækið var hannað af Boris Birmaher og samstarfsfélögum í Bandaríkjunum árið 1997 og hefur þótt réttmætt og áreiðanlegt við greiningu kvíðaraskana. Mælitækið var lagt fyrir fimm skólahjúkrunarfræðinga og tvo sálfræðinga sem gáfu ábendingar og settu fram athugasemdir í þeim tilgangi að auka gæði og réttmælti íslenskrar útgáfu mælitækisins. Vonast er til að mælitækið geti nýst íslenskum skólahjúkrunar-fræðingum til að bera kennsl á kvíða hjá börnum svo þau geti fengið viðeigandi aðstoð og stuðning sem fyrst. Lykilorð: sálvefræn einkenni, börn, unglingar, skimun, verkir, streita og kvíði.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigríður Birta Kjartansdóttir 1986-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/13282
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/13282