Back to results

University of Iceland

Forprófun á árangri áhugahvetjandi samtala og hugrænnar atferlismeðferðar í hóp á unglingum með sykursýki

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur rannsóknarinnar var að forprófa hópmeðferð fyrir unglinga með sykursýki 1 sem byggist á áhugahvetjandi samtölum, hugrænni atferlismeðferð og fræðslu. Þátttakendur voru fjórir 13 til 16 ára unglingar með sykursýki 1 og foreldrar þeirra. Árangur meðferðarinnar var metinn með því að athuga hvort meðal blóðsykursgildi væru lægri og hvort meðalfjöldi blóðsykursmælinga hefði aukist í lok meðferðar. Einnig voru lagðir fyrir lífsgæðalistar (Pediatric Quality of Life Inventory 4.0 og Peds QL, Diabetes module, 3.0) sem ætlað var að meta hvort lífsgæði unglinganna hefðu aukist í lok meðferðar. Einnig var lagður fyrir listi sem mat hugræna virkni (Peds QL, Cognitive functioning scale, standard version) og unglingarnir svöruðu ánægjumatslista. Langtímablóðsykur (Hba1c) unglinganna var mældur við upphaf meðferðar sem fór fram vikulega í sex vikur á Barnaspítala Hringsins. Ekki var hægt að sýna fram á árangur meðferðarinnar þar sem ekki var markverður munur á fjölda blóðsykursmælinga, meðaltali blóðsykurs eða lífsgæðum unglinganna fyrir og eftir meðferð. Svör unglinganna á ánægjumatslista gáfu til kynna að þeir hefðu verið ánægðir með meðferðina.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Svanhildur Tinna Ólafsdóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12069
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12069

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Svanhildur Tinna Ólafsdóttir 1985-. Forprófun á árangri áhugahvetjandi samtala og hugrænnar atferlismeðferðar í hóp á unglingum með sykursýki. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12069