Back to results

University of Iceland

Íslenskir fatahönnuðir á alþjóðlegum markaði og ferðaþjónusta

Abstract

dc:description.abstract

Helsta markmið rannsóknarinnar er að sýna fram á tengsl íslenskra fatahönnuða við ferðaþjónustuna. Þá er skoðað hvernig ferðaþjónustan og fatahönnunin á Íslandi helst í hendur og hvernig tækifærin eru fyrir íslensku fatahönnuðina í markaðssetningu á Íslandi og erlendis. Við gagnaöflun var notast við eigindlegar rannsóknaraðferðir með því að taka opin viðtöl við fjóra íslenska fatahönnuði á alþjóðlegum markaði. Allir viðmælendurnir voru með mismunandi útlit á sinni fatahönnun. Öll viðtölin voru tekin upp innan höfuðborgarsvæðisins. Í viðtölunum fengu viðmælendur að segja frá sínu fyrirtæki og hvernig það mögulega fléttaðist inn í ferðaþjónustuna á Íslandi ásamt því að deila með rannsakanda sinni upplifun og reynslu á sviði fatahönnunar. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna meðal annars fram á það að fatahönnuðirnir eru ekki aðeins að reyna að hanna fyrir ferðamenn heldur líka fyrir fólk almennt sem hefur áhuga á tísku og frumleika. Fatahönnuðirnir notast mikið við íslenska náttúru og sögu til að koma fatalínu sinni á framfæri. Þeir hafa tekið eftir því að náttúra okkar Íslendinga selur, þykir mjög einstakt fyrirbæri og því tilvalin til markaðssetningar. Í því samhengi verður leitast eftir að fá svör við því hvort það sé jákvætt eða neikvætt fyrir íslensku fatahönnuðina að vera íslenskir. Viðmælendur mínir telja internetið vera bestu leiðina til að markaðssetja sig á Íslandi jafnt sem erlendis. Einnig felst mikil markaðssetning í því að koma fram í tímaritum og á sýningum erlendis. Flestir voru sammála um að það væri mjög líklegt að þeir ferðamenn sem væru að kaupa þeirra vörur væru einmitt búnir að heyra góða umfjöllun um þau. Allir voru sammála um að draumurinn væri að búa á Íslandi og hanna þar og reyna að koma sér á framfæri út um allan heim, en að skortur á fjármagni standi oft í vegi fyrir því að það yrði að veruleika. Lykilorð: Íslensk fatahönnun, alþjóðlegur markaður, markaðssetning, ferðaþjónusta.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þórdís Óskarsdóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/11755
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/11755

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þórdís Óskarsdóttir 1987-. Íslenskir fatahönnuðir á alþjóðlegum markaði og ferðaþjónusta. 2012. http://hdl.handle.net/1946/11755