Back to results

University of Iceland

Dualism of Iranian Homosexuality. A way to dialogue

Abstract

dc:description.abstract

Þessi ritgerð er um samkynhneigð í Mið-Austurlöndum almennt en með áherslu á Íslamska Lýðveldið Íran. Tilgangur þessarar ritgerðar er að sýna raunheim samkynhneigðra manna í Íran byggðan á eigin reynslu með viðtölum og vettvangrannsóknum í höfuðborginni Teheran 2011 sem afhjúpaði stóran undirheim homma, ósjáanlegan og óaðgengilegan ekki bara heimafólki heldur líka alþjóðasamlélaginu. Ritgerðin tekur á vandamálum tengdum því að vera samkynhneigður í múslimsku feðraveldi þar sem samkynhneigð er bæði fordæmd og bönnuð ekki bara af yfirvöldum heldur einnig af stórum hluta almennings og varpar ljósi á tvöfalt siðgæði samkynhneigðra í Íran, þar sem kynhneigðin er stunduð af svo stórum hópi fólks þó dauðarefsing liggi við. Samkynhneigð er enn bannorð í þessum heimshluta en byggist á þeirri meginreglu að ,,gera það en ekki tala um það”. Sýnileiki samkynhneigðs samfélags er mjög takmarkaður í Íran vegna dauðarefsingarinnar og kemur í veg fyrir að fólk tali opinskátt um hana eða komi út úr skápnum einnig er hún einungis skilgreind sem ákveðin hegðun en ekki varanlegur lífstíll. Þetta verkefni er byggt á vettvangsrannsóknum frá mismunandi stöðum í Teheran þar sem samkynhneigðir koma saman og samtölum við sex einstaklinga valda af handahófi sem deila reynslu sinni af því að vera samkynhneigðir í Íslamisku samfélagi þeirra daglega lífi vandamálum og vonum um framtíðina. Þetta er um venjulegt fólk og þeirra venjulega líf en vandamál sem okkur í hinum vestræna heimi finnast óvenjuleg. Þessi ritgerð tekur á því að vera samkynhneigður múslimi og þeirra raunveruleika og þá pólitík er ríkir varðandi kyn og kynlíf í miðausturlöndum eða múslimskum heimi, sögu þeirra og áhrif á heim okkar í dag með áherslu á Íran þar sem mætast tvær ólíkar staðreindir: Dauðarefsing við samkynhneigð og vinsældir hennar meðal karlmanna sem skapar aftur hið tvöfalda siðgæði gagnvart samkynhneigð í Íran. Tilgangur þessarar ritgerðar er að sýna ólíkar hliðar samkynhneigðar og styðja frekari umræður með því að brjóta á ,,bannorðinu” í hinum óvestræna heimi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Didziokas, Ugnius Hervar, 1975-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
en

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/11550
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/11550

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Didziokas, Ugnius Hervar, 1975-. Dualism of Iranian Homosexuality. A way to dialogue. 2012. http://hdl.handle.net/1946/11550