Back to results

University of Iceland

Áfengisdrykkja á meðgöngu. Langtímaáhrif á börn

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari heimildaritgerð er fjallað um áfengisneyslu móður á meðgöngu og áhrif þess á barnið. Leitað er sérstaklega svara við þeim langtímaáhrifum sem neyslan hefur á börn, ásamt áhrifum á fóstur og nýbura. Fyrir utan fræðilega umfjöllun um áfengi og vímuefnafíkn verður fjallað um konur og áfengissýki og félagsráðgjöf. Markmið ritgerðarinnar er að auka þekkingu fagfólks á þeim langtímaáhrifum sem áfengisneysla móður á meðgöngu getur haft á börn. Ritgerðin er fræðileg samantekt þar sem stuðst er við rannsóknir, bækur og ritrýndar greinar. Áhrif áfengisneyslu móður á meðgöngu geta verið mjög skaðleg og komið fram í einkennum sem kallast FASD (e. Fetal alcohol spectrum disorders). Andlitsvansköpun og vaxtarskerðing geta komið fram hjá barni stuttu eftir að það fæðist. Sá skaði sem ekki sést með berum augum er þó alvarlegri og getur valdið varanlegri fötlun sem kemur fram í áfengistengdri röskun á taugaþroska og veldur vitsmunaskerðingu hjá barninu. Langtímaáhrifin birtast í náms- og hegðunarerfiðleikum hjá börnum og þegar á fullorðinsár er komið verða félagslegir erfiðleikar algengir. Rannsóknir sýna að fullorðnir einstaklingar með FASD eru gjarnan einangraðir og hafa lítið félagslegt bakland. Geðræn vandamál eru einnig algeng. Stuðningur og hvatning félagsráðgjafa og fagfólks getur skipt sköpum fyrir framtíð þessara barna ef rétt er farið að og nógu snemma er gripið inn í aðstæðurnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kolbrún Ýr Guðmundsdóttir 1977-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/11515
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/11515

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kolbrún Ýr Guðmundsdóttir 1977-. Áfengisdrykkja á meðgöngu. Langtímaáhrif á börn. 2012. http://hdl.handle.net/1946/11515