Back to results

University of Iceland

Skattlagning á ferðaþjónustu

Abstract

dc:description.abstract

Ferðaþjónusta á Íslandi hefur farið ört vaxandi á síðustu áratugum og frábær árangur hefur náðst. Flugrekstur er helsta samgönguleið til og frá landinu og er því grundvallarþáttur í ferðaþjónustu hér á landi. Skattlagning ferðaþjónustu, þar með talið flugreksturs, hefur á síðustu árum einkennst af tíðum hækkunum og tilkomu nýrra skatta. Skattaumhverfi ferðaþjónustunnar hefur orðið flóknara síðustu ár og verið óstöðugt. Gæti einföldun og stefnubreyting í skattlagningu á ferðaþjónustu leitt til hagstæðari rekstrarskilyrða fyrir þau fyrirtæki sem koma að ferðaþjónustu á Íslandi? Fjallað verður um núverandi stöðu ferðaþjónstunnar hér á landi útfrá tölulegum gögnum og hún greind með ýmsum verkfærum viðskiptafræðinnar. Skattaumhverfi ferðaþjónustunnar verður skoðað og leitast við að varpa ljósi á þá skatta sem hafa sérstaklega mikil áhrif á rekstur fyrirtækja í greininni. Stöðugar skattahækkanir síðustu ára og tilkoma nýrra skatta hafa haft afar neikvæð áhrif á flugrekstur og ákveðna hluta ferðaþjónustunnar. Þessi óstöðugleiki í rekstrarumhverfi ferðaþjónustufyrirtækja gerir það erfiðara fyrir fyrirtæki að móta sér langtíma stefnu og hefur því letjandi áhrif á fjárfestingar og uppbyggingu. Ritgerðinni er ætlað að vekja athygli lesanda á mikilvægi ferðaþjónustu og flugreksturs á Íslandi og möguleikum til þess ná frekari árangri á þeim sviðum. Eftir lestur ritgerðarinnar vonast ég til að hið flókna skattaumhverfi ferðaþjónustunnar sé skýrara fyrir lesandann og að hann hafi myndað sér skoðun á stefnu stjórnvalda í skattamálum ferðaþjónustunnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Högni Helgason 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/11311
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/11311

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Högni Helgason 1989-. Skattlagning á ferðaþjónustu. 2012. http://hdl.handle.net/1946/11311