Back to results

University of Iceland

Hlutverk Íslenska Hestsins í Menningarsögu Íslendinga

Abstract

dc:description.abstract

Íslenski hesturinn hefur verið með Íslendingum allt frá Landnámsöld. Höfundur skoðar tengsl íslenska hestsins við menningarsögu Íslendinga og hvernig það hlutverk sem hann hefur leikið í gegn um aldirnar hefur breyst. Fyrir komu vinnuvéla var hesturinn notaður sem vinnutæki í bæjum og sveitum. Þegar vélknúin tæki leystu hann af hólmi við vinnu fundu áhugamenn um hestinn honum nýtt hlutverk meðal þjóðarinnar. Í þessu nýja hlutverki felst að hann er nýttur sem fjölhæfur reiðhestur sem veitir fólki ánægjustundir.Hesturinn hefur stuðlað að skipulögðum mannamótum og um hann hafa verið stofnuð félög. Í ritgerðinni verður tilgangur þessara félaga rakinn. Jafnframt eru breytingar á stöðu hestsins í trúarlegu lífi Íslendinga skoðaðar, nánar tiltekið um stöðubreytingu hestsins þegar Íslendingar létu af heiðinni trú. Að lokum er fjallað um hvernig hann er fléttaður inn í þjóðsögur og ljóð sem hluti af menningararfi Íslendinga. Höfundur telur ljóst að hesturinn sé flokkaðir sem gæludýr af íslensku samfélagi. Hesturinn er hluti af menningararfi Íslendinga og til eru margar leiðir til að njóta samvistar við hann.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Erla M. Hjartar Grétarsdóttir 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/11265
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/11265

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Erla M. Hjartar Grétarsdóttir 1982-. Hlutverk Íslenska Hestsins í Menningarsögu Íslendinga. 2012. http://hdl.handle.net/1946/11265