Abstract
dc:description.abstractTilgangur þessa verkefnis er að útbúa líkan sem getur framkvæmt flóðagreiningu. Hönnun líkansins er höguð þannig að gefin rétt gögn mun það geta framkvæmt slíka greiningu fyrir allar ár. Fjórar ár á Íslandi eru til skoðunnar í þessu verkefni. Tvenns konar líkön eru útbúin fyrir árnar til skoðunnar. Annars vegar, svokallað block maxima líkan (BM), sem notast við árleg hágildi vatnsrennslis, og hins vegar, svokallað þröskuldslíkan (TM), sem notast við vatnsrennslisgildi sem fara yfir ákveðinn þröskuld. Mismunandi aðferðir við val á þröskuldi eru vandlega skoðaðar. Almenna hágildisdreifingin er notuð í block maxima líkaninu og almenna Pareto dreifingin er notuð í þröskuldslíkaninu. Almenna hágildisdreifingin hefur þrjá stika, þ.e. staðsetningarstika, skölunarstika og lögunarstika. Almenna Pareto dreifingin hefur tvo stika, þ.e. skölunarstika og lögunarstika. Lögunarstikar þessarra dreifinga segja til um hverning halar dreifinganna haga sér og eru því sérstaklega til skoðunar í þessu verkefni. Bayesískar tölfræðiaðferðir og Monte Carlo hermun eru notaðar við líkanagerðina. Athugað er sérstaklega hvernig þrenns konar mismunandi val á fyrirframdreifingum lögunarstikanna hefur áhrif á flóðagreiningunna. Einnig er óvissan í úteiknuðum vatnsrennslisgildum sérstaklega skoðuð. Vatnsrennslisgildin eru reiknuð út frá vatnshæðum með svokölluðum rennslislyklum. Rennslislyklar lýsa vörpun vatnshæðar yfir í vatnsrennsli og þessari vörpun fylgir óvissa. Líkanið tekur tillit til þessarar óvissu í flóðagreiningunni. Niðurstöður sýna að þessi viðbætta óvissa rennslisyklanna hefur þau áhrif að heildaróvssa 100 ára atburða eykst um allt að 15%.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Fjalarr Páll Mánason 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- en
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/10870
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/10870