University of Iceland
Samkeppni á íslenskum raforkumarkaði. Áhrif á raforkufyrirtæki og afkomu þeirra
Abstract
dc:description.abstractVirk samkeppni getur leitt til verulegra breytinga á raforkumarkaðnum. Samkvæmt fræðunum þá getur aukin samkeppni meðal annars leitt til þess að hagnaður fyrirtækja á markaðinum minnki og verð lækki. Samkeppni var hins vegar lengi vel talin ekki henta raforkumarkaðnum þar sem hagkvæmara væri fyrir neytendur að einn aðili sæi um allar þarfir viðskiptavina. Viðhorf til raforkumarkaða hefur síðan breyst og er nú talið að samkeppni geti þrifist í framleiðslu og sölu á markaðinum. Markmið rannsóknar var að kanna hvort hægt væri að koma auga á virka samkeppni á markaðinum og hvort hún hafi skilað breytingu í ársreikningum raforkufyrirtækja, markaðshlutdeild og/eða verði á raforku. Rannsóknin var framkvæmd með gagnaöflun og notast var við ársreikninga og annað útgefið efni til að komast að niðurstöðu. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að samkeppni á raforkumarkaðnum hafi leitt til lækkunar á raunverði raforku þegar búið er að taka tillit til vísitölu neysluverðs. Breytingar hafa orðið á markaðshlutdeild raforkuframleiðenda eftir að samkeppni var gefin frjáls. Á sama tíma hefur markaðshlutdeild fyrirtækja í sölu lítið sem ekkert breyst. Þegar ársreikningar raforkufyrirtækja og valdar kennitölur þeirra voru skoðaðar var ekki hægt að greina breytingar sem eru til komnar vegna aukinnar samkeppni á markaðinum. Hins vegar gerir efnahagshrunið greininguna erfiðari þar sem miklar sveiflur mátti sjá vegna þess 2008 og árin þar á eftir á ýmsum kennitölum og rekstrarupplýsingum raforkufyrirtækjanna.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigurbjörg Ellen Helgadóttir 1981-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/10560
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/10560