University of Iceland
Colette et sa venue à l’écriture. Le phallocentrisme, les oppositions binaires et l’écriture féminine dans le cycle des Claudine
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð er Claudine serían tekin til umfjöllunar – en hún samanstendur af fjórum skáldsögum eftir frönsku skáldkonuna Colette (1873-1954) sem hún skrifaði í félagi við fyrsta eiginmann sinn, Willy. Ásamt þeirri fimmtu, La retraite sentimentale, sem Colette skrifaði ein eftir skilnað sinn við Willy, mynda skáldsögurnar heild sem líta má á sem eins konar þroskasögu aðalpersónunnar Claudine. Henni er fylgt í gegnum skólagöngu, kynnum hennar og sambandi við eiginmann hennar er lýst sem og lesbískum ástarsamböndum. Claudine serían er greind og borin saman við La retraite sentimentale, með hliðsjón af kenningum Hélène Cixous um stöðu konunnar gagnvart karlinum, með það fyrir ljósi að skoða mögulegan mun á persónum og efnistökum í textum skrifuðum undir áhrifum frá Willy og þeim sem Colette skrifar ein. Þegar Colette skrifaði undir áhrifum eiginmanns síns voru skrif hennar innan fallósentrískar hefðar. Fallósentrískt stigveldi hvílir á andstæðupörum sem ávallt er hægt að rekja til parsins karl/kona. Þetta eru til að mynda virkni/óvirkni, menning/náttúra, höfuð/tilfinningar: andstæðurnar eru ávallt karlinum í hag á meðan konan er undirokuð og óvirk. Í Claudine seríunni gegnir parið karl/kona stóru hluverki og andstæðupörin sem tilheyra því eru áberandi. Colette tekst á við þessa hefð í skáldsögunni La retraite sentimentale og gerir tilraun til þess að brjótast undan oki karllægninnar með því að setja fram þrár og hvatir konu sem slítur sig frá fyrirfram skilgreindu hlutverki þess kyns sem hún tilheyrir. Í ritgerðinni verður jafnfram litið til þeirra breytinga sem verða á persónunni Claudine í La retraite sentimentale miðað við Claudine seríuna til að sýna fram á tilfinningalega frelsun Claudine undan karllægu valdi, og að lokum verður fjallað um kvenlæg skrif (écriture féminine) og birtingarmyndir þeirra í sama verki.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hjördís Alda Hreiðarsdóttir 1986-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- fr
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/10042
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/10042