Abstract
dc:description.abstractÍmynd Íslands hefur beðið hnekki undanfarið ár sem og ferðaiðnaður landsins í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli. Því er enn mikilvægara en áður að nýta þau verðmæti sem Ísland hefur upp á að bjóða. Markmið þessarar B.Sc. ritgerðar var að athuga fýsileika nýrrar viðskiptahugmyndar á sviði landkynningar fyrir Ísland. Í aðdraganda verkefnisins var farið í ítarlega heimildaleit ásamt því að gerð var eigindleg rannsókn verkefninu til stuðnings. Fræðilegi hluti ritgerðarinnar leggur grunn að þáttum sem styrkja fýsileika hugmyndarinnar. Farið var í efni eins og ímynd Íslands, markaðssetningu landsins hingað til, Ísland sem áfangastað og nýjar leiðir í markaðssetningu. Upp frá fræðilegri upplýsingaöflun var unnin viðskiptaáætlun samkvæmt hugmyndargrunni frá eigendum hugmyndarinnar, Árna Árnasyni og Þorsteini Erni Guðmundssyni. Viðskiptaáætlunin gefur greinagóða lýsingu á hugmyndinni ásamt markaðsgreiningu sem framkvæmd var til þess að svara spurningunni um það hvort markaður sé til staðar fyrir starfsemi af þessu tagi. Sett var fram sölu- og fjárhagsáætlun ásamt SVÓT- og núllpunktsgreiningu við fýsileikaathugun sem og framkvæmdaáætlun og lykilatriði til árangurs í framkvæmd hugmyndarinnar. Fræðilegar heimildir gefa grundvöll fyrir því að mögulegt sé að framkvæma þessa hugmynd til landkynningar. Niðurstöður úr eigindlegri rannsókn og greiningum í viðskiptaáætlun gefa einnig staðfestu á að til sé markaður fyrir slíka hugmynd erlendis. Skoðun höfunda, byggð á niðurstöðum, er sú að tækifæri til landkynningar eru fjölmörg og full ástæða er til að ráðast í framkvæmd umræddar hugmyndar, þar sem hún er allt í senn frumleg, áhugaverð og vel framkvæmanleg.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Valgerður Tryggvadóttir 1987-
- Karen Lena Óskarsdóttir 1989-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/9815
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/9815