Abstract
dc:description.abstractBloggsíður eru í auknum mæli notaðar til að fjalla um og kynna vörur og þjónustu fyrirtækja og eru orðnar að ómissandi þætti í útbreiðslu umtals og mótun orðspors fyrirtækja. Erlendar rannsóknir sýna að um níu af hverjum tíu þeirra fyrirtækja sem nota bloggsíður í markaðssetningu, telja þær skila árangri. Þá telja rúmlega 40% neytenda auknar líkur á að þeir kaupi vörur eða þjónustu út frá upplýsingum á bloggsíðum. Í rannsókninni var kannað hvort vöruumfjöllun á bloggsíðum hefði áhrif á vörusölu á íslenskum markaði. Framkvæmd var blind rannsókn (e. blind study) og þrjár sjálfstæðar bloggfærslur birtar á íslenskri bloggsíðu. Færslurnar samanstóðu af umfjöllunum um þrjár mismunandi snyrtivörur auk kennslumyndbanda um notkun hverrar vöru fyrir sig og mynda af umbúðum varanna. Þátttakendur í rannsókninni, lesendur bloggfærslnanna, voru alls 12.777. Sölutölur varanna þriggja voru rannsakaðar fyrir einn mánuð í kjölfar umfjöllunar á síðunni og bornar saman við sölutölur fyrir umfjöllun. Niðurstöður sýndu vegið meðaltal söluaukningar um 166%. Rúmlega 84% aukning varð á tímabilinu í sölu á vöru eitt, rúmlega 383% aukning á vöru tvö og tæplega 14% aukning á vöru þrjú. Samkvæmt rannsókninni er því ljóst að vöruumfjallanir á bloggsíðum hafa áhrif á neytendur og kaupákvörðun þeirra.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Rakel Ósk Guðbjartsdóttir 1985-
- Sóley Jónsdóttir 1984-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/9809
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/9809