Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar ritgerðar er í meginatriðum að kanna hvort ákvæði íslenskra laga um kynferðisbrot veita fullnægjandi vernd gagnvart nettælingu og barnklámi. Gerð er grein fyrir þeirri háttsemi sem felst annars vegar í nettælingu og hins vegar í framleiðslu, dreifingu og vörslu barnakláms, en þessir verknaðir eiga það sameiginlegt að vera aðferðir brotamanna til að notfæra sér varnarleysi barna á vettvangi netsins. Þá er gerð grein fyrir ástæðum þess að netið er helsta verkfæri gerenda í þessum brotum ásamt því að lýsa hvaða tengsl eru milli nettælingar og barnakláms. Fjallað er um alþjóðlega sáttmála sem snerta vernd barna gegn kynferðislegri misnotkun og kynferðisofbeldi og athugað hversu ríka vernd samningarnir hafa að geyma gagnvart þessum brotum. Niðurstaðan er sú að þeir leggja ríka skyldu á herðar löggjafanum að tryggja börnum vernd gegn kynferðislegri misnotkun. Skýrt lagaákvæði um vernd barna gegn nettælingu er ekki að finna í íslenskri löggjöf en í 210. gr. hinna almennu hegningarlaga nr. 19/1940 er að finna ákvæði sem kveður á um vernd barna gegn barnaklámi. Ákvæði 202. og 210. gr. hegningarlaganna eru skoðuð með það að leiðarljósi hvort þau veita fullnægjandi vernd gagnvart nettælingu og barnaklámi. Athugunin leiddi í fyrsta lagi í ljós að nettæling verður ekki felld undir ákvæði 202. gr. með óyggjandi hætti. Í öðru lagi leiðir athugun á 210. gr. í ljós að þrátt fyrir að hámarksrefsing fyrir brot á ákvæðinu sé tveggja ára fangelsi ber dómaframkvæmd þess vitni að einstaklingar sem eru sakfelldir fyrir vörslu barnakláms hljóta mjög vægar refsingar. Taka mætti til athugunar að lögfesta ákvæði 20. og 23. gr. Evrópuráðssamnings um vernd barna gegn kynferðislegri misneytingu og kynferðislegu ofbeldi í því skyni að veita börnum aukna refsivernd gegn þessum brotum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hrefna Þórsdóttir 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/9446
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/9446