Back to results

Reykjavík University

Þjálfun barna og unglinga - Skipulag, samhæfing, snerpu- og styrktarþjálfun

Abstract

dc:description.abstract

Meginmarkmið og tilgangur þessarar rannsóknar er að kanna hvort þjálfun líkamsþátta sem tengjast samhæfingu, snerpu- og styrktarþjálfun barna og unglinga sé almennt nægjanlega vel sinnt á Íslandi. Það sem mig langaði meðal annars að kanna var hvort munur væri á áliti knattspyrnu- og fimleikaþjálfara hvað þessa þætti varðar. Einnig langaði mig að kanna skipulag félaganna sem þjálfararnir starfa hjá. Spurningalisti var lagður fyrir þjálfara knattspyrnu- og fimleikadeilda barna og unglinga á höfuðborgarsvæðinu sem þjálfa aldurshópinn 9-14 ára. Fjöldi þátttakenda í rannsókninni voru 93 þjálfarar, 49 knattpyrnuþjálfarar og 44 fimleikaþjálfarar. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru að þekking þjálfara á þessum líkamsþáttum er góð og þeir telja þessa þætti skipta miklu máli í þjálfun barna. Hins vegar telja þeir þessum þáttum í þjálfun barna almennt ekki nægjanlega vel sinnt. Starfsreynsla þjálfara barna og unglinga er mikil og tæplega 40% þjálfara hafa starfað við þjálfun í 10 ár eða lengur. Skipulag félaganna er almennt til fyrirmyndar og vel haldið utan um þætti sem snúa að þjálfurum félaganna, s.s kennsluskrá, gögn og þjálfarafundi. Lykilorð; börn, þjálfun, samhæfing, snerpa, styrkur, skipulag, knattspyrna, fimleikar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Haukur Már Hjartarson 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/9219
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/9219

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Haukur Már Hjartarson 1985-. Þjálfun barna og unglinga - Skipulag, samhæfing, snerpu- og styrktarþjálfun. 2011. http://hdl.handle.net/1946/9219