Back to results

Reykjavík University

Tengingar núllpunkta með tilliti til jarðhlaupsvarna

Abstract

dc:description.abstract

Í þessu verkefni er sjónum beint að 66 kV raforku-flutningskerfinu á Austurlandi. Í október 2009 varð bilun vegna ísingar á 66 kV flutningslínu sem leiddi af sér fasa-jörð skammhlaup, öðru nafni jarðhlaup. Bilunin olli víðtæku straumleysi um allt Austurland vegna óáreiðanlegrar valvísi núverandi jarðhlaupsvarnarbúnaðar. Einnig er ósamræmi milli tenginga á núllpunktum forvafa á 66/11 og 66/33 kV aflspennum m.t.t. til jarðhlaupsvarnarbúnaðarins. Landsnet viðhafði prófanir á jarðhlaupsvörn með mismunandi kennilínur og í þessu verkefni eru eiginleikar þeirrar kennilínu sem kom bestu út úr þeim prófum kannaðir nánar á áðurnefndu raforkuflutningskerfi fyrir austan. Markmiðið var finna heppilegustu útfærslu á núllpunktatengingum forvafa áðurnefndra aflspenna. Til að framkvæma könnunina þurfti að líkja eftir jarðhlaupi á 66 kV flutningslínum og var því byggt líkan af raforkuflutningskerfinu í forritinu PSS/E. Gerðar voru jarðhlaupsprófanir á öllum 66 kV flutningslínunum við þrjú mismunandi tilfelli á tengingum núllpunkta með valvísi jarðhlaupsvarnarbúnaðarins að leiðarljósi. Niðurstaðan var sú að besta útkoman fæst með því að jarðtengja alla núllpunkta á forvöfum 66/11 og 66/33 kV aflspennanna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Róbert Marel Kristjánsson 1975-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/7706
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/7706

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Róbert Marel Kristjánsson 1975-. Tengingar núllpunkta með tilliti til jarðhlaupsvarna. 2011. http://hdl.handle.net/1946/7706