Back to results

Reykjavík University

Fylgni milli VALD styrk- og kraftmælinga og frammistöðu í vettvangsprófum hjá ungum knattspyrnumönnum

Abstract

dc:description.abstract

Það hefur aukist til muna að notuð séu sérhæfð mælitæki í íþróttavísindum. VALD system er eitt af þessum mælitækjum en lítið er til um niðurstöður á notkun þess hjá ungum knattspyrnumönnum. Markmið rannsóknarinnar var að kanna þessi tengsl hjá nemendum í Íþróttaakademíu Borgarholtsskóla. Þátttakendur voru 37 ungir knattspyrnumenn á aldrinum 15-18 ára. Rannsóknin var megindleg fylgirannsókn þar sem mælingarnar skiptust í tvö tímabil, Vettvangspróf (10m og 30m sprettur, standing broad jump og Agility T-Test) hjá öllum 37 þátttakendum og VALD mælingar (NordBord, ForceFrame og ForceDecks) hjá 20 þátttakendum. Pearson fylgnistuðull var notaður til að meta tengsl milli mælinganna. Niðurstöður sýna að excentrískur hamstringsstyrkur tengist sprettframmistöðu með neikvæðum fylgnistuðlum á bilinu r = -0,41 til r = -0,50, þar sem sterkust er fylgnin við 30m sprett. Sterkasta fylgnin kemur fram milli stökkhæðar í countermovement jump (CMJ) og stökklengdar í broad jump (r = 0,72, R² = 0,52). Tengsl isímetrísks mjaðmarstyrks við snerpuframmistöðu eru veikust, þar sem aðfærslustyrkur sýnir nánast enga fylgni (r = -0,19) en fráfærslustyrkur sýnir sterkari fylgni (r = -0,45). Niðurstöður styðja notkun VALD mælinga í þjálfunarmati hjá ungum knattspyrnumönnum og gefa til að kynna að CMJ og Nordic hamstings mælingar endurspegli vel frammistöðu í vettvangsprófum. Isómetrískar mjaðmamælingar einar og sér veita takmarkaðar upplýsingar um snerpugetu. Lagt er til að í framtíðarrannsóknum sé notað stærra úrtak og bætt sé við excentrískar mjaðmastyrkmælingum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Stefán Óli Hallgrímsson 2002-
  • Arnór Gauti Ragnarsson 1997-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53720
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53720

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Stefán Óli Hallgrímsson 2002-; Arnór Gauti Ragnarsson 1997-. Fylgni milli VALD styrk- og kraftmælinga og frammistöðu í vettvangsprófum hjá ungum knattspyrnumönnum. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53720