Back to results

Reykjavík University

Hvatakaup neytenda á Instagram : hvernig hafa persónusniðnar auglýsingar, áhrifavaldar og einfaldar greiðsluleiðir áhrif á hvatakaup á Instagram?

Abstract

dc:description.abstract

Kauphegðun notenda á samfélagsmiðlinum Instagram hefur breyst með tilkomu ólíkra áhrifaþátta og tækniframfara á borð við algrím og gervigreind. Samfélagsmiðlar eru orðnir sívaxandi vettvangur fyrir auglýsingar á vörum og þjónustu og í dag er orðið algengara að hægt sé að versla vörur beint í gegnum miðlana. Í ritgerðinni skoðar rannsakandi hvernig áhrif persónusniðnar auglýsingar, efni áhrifavalda og einfaldar greiðsluleiðir hafa á kauphegðun notenda Instagram og líkur á því sem kallað eru hvatakaup. Hvatakaup eru skyndilega og tafarlaus kaup þar sem neytandi finnur fyrir mikilli og sterkri hvöt til þess að kaupa ákveðna vöru. Áhrifaþættirnir eru skoðaðir útfrá S-O-R líkaninu sem fjallar um það að ákveðið áreiti (S) valdi innra ástandi (O) sem leiði til ákveðinnar hegðunar (R). Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að persónusniðnar auglýsingar séu veigamesti markaðsþátturinn á Instagram sem stuðlar að hvatvísum kaupum notenda, að áhrifavaldar geti valdið hvatakaupum en að einfaldar greiðsluleiðir séu ólíklegasti þátturinn til að stuðla að hvatakaupum. Með niðurstöðum rannsóknarinnar gefst tækifæri til að endurskoða stafræna markaðssetningu íslenskra fyrirtækja á Instagram og herja á persónusniðnar auglýsingar fyrir mjög ákveðinn markhóp.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristinn Daníel Kristinsson 1999-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53689
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53689

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristinn Daníel Kristinsson 1999-. Hvatakaup neytenda á Instagram : hvernig hafa persónusniðnar auglýsingar, áhrifavaldar og einfaldar greiðsluleiðir áhrif á hvatakaup á Instagram?. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53689